Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Lovísa Arnardóttir skrifar 29. apríl 2026 12:04 Myndin er tekin á einu af sex þingum Barnaheilla um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Barnaheill Bakslag er í kynjajafnrétti á samfélagsmiðlum og fá kynin afar ólík skilaboð. Stelpur eigi að vera kvenlegar, heimavinnandi og setja sjálfar sig í annað sætið. Strákar eigi að vera sterkir og góð fyrirvinna. Algengt er að gerð sé krafa um að deila staðsetningu með maka og dæmi um að strákar deili nektarmyndum af kærustum með vinum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum ungmennaþings Barnaheilla um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Þar kom fram að slíkt ofbeldi væri verulega algengt og mun útbreiddara en flestir gera sér grein fyrir. Þá kemur einnig fram að ungmenni séu hrædd við að segja frá. Í niðurstöðunni kemur fram að kynjaðar staðalmyndir liti hugmyndir um hinn fullkomna kærasta og kærustu alvarlegum augum og íhaldssöm viðhorf laumist inn í samskipti og sambönd ungmenna. Stelpur eigi að líta vel út og vera kvenlegar, sjá um heimilið og börnin og vera tilbúnar að setja kærastann í fyrsta sæti. Strákar eiga aftur á móti að vera karlmannlegir, sterkir, stjórnsamir, sjá um bílinn og það sem bilar, vinna mikið og græða peninga, og kaupa blóm og gjafir. Barnaheill, með styrk frá dómsmálaráðuneytinu, héldu sex ungmennaþing um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna í febrúar og fram í apríl 2026. Alls tóku um 300 nemendur þátt í þingunum sem haldin voru á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, á Egilsstöðum, á Selfossi, á Akureyri og á Ísafirði. Hrædd við að segja frá Í tilkynningu frá Barnaheillum kemur fram að á þingunum hafi komið saman nemendur úr efstu bekkjum grunnskóla og úr framhaldsskólum og var kynjaskipting frekar jöfn. Í tilkynningu segir að mikill samhljómur hafi verið um allt land varðandi upplifun unga fólksins af ofbeldi í nánum samböndum. Öll hafi verið sammála um að slíkt væri of algengt og mun útbreiddara en flestir geri sér grein fyrir. Ítrekað hafi komið fram í umræðum að andlegt ofbeldi og stjórnun væru vandamál í samskiptum en einnig að ungmennin væru hrædd við að segja frá. Í skýrslu um þingið kemur fram að algengast sé að þau segi vinum, svo foreldrum eða starfsfólki í skólanum eða félagsmiðstöðinni. Mörg nefndu úrræði eins og Sjúkt spjall eða 1717 sem leið til að fá speglun á sambandið sitt og leið til að segja ókunnugum frá. Þá sögðu þau að þeim þætti auðveldara að skipta sér af ef vinur eða vinkona væri beitt ofbeldi en þegar vinur eða vinkona væri að beita ofbeldi. Félagsleg staða skipti líka máli, ef hin manneskjan á stærri eða sterkari vinahóp þá sé enn ólíklegra að viðkomandi þori að segja frá því hópurinn tekur afstöðu með vini sínum. Dægurmenning og klám hafi mikil áhrif Þá kemur einnig fram í niðurstöðunum að dægurmenning og klám hafi veruleg áhrif á hegðun, framkomu og kröfur í nánum samböndum ungmenna og að tæknin hafi þar mikil áhrif. Stöðug krafa sé um að vita hvar hinn aðilinn sé með því að hafa kveikt á staðsetningarbúnaði, til dæmis á Snapchat. Þá kemur fram að stafrænt ofbeldi sé mjög algengt og að mikið sé um að strákar skiptist á nektarmyndum af kærustum sínum án þeirra vitundar. Þá er algengt að ungmenni upplifi pressu til að stunda kynlíf og prófi kyrkingartök og líkamlegar meiðingar í samförum. Í skýrslu Barnaheilla um þingið kemur fram að enginn munur hafi verið á skilaboðum ungmennanna til stjórnvalda milli landshluta. Þau krefjast þess að stjórnvöld tryggi betri kynja- og kynfræðslu til allra barna og unglinga. Fræðslan eigi að byrja strax á yngsta stigi og vera gerð að skyldufagi. Miklu meira fjármagn þurfi í málaflokkinn, forvarnir og fræðslu, og auka þurfi aðgengi að fagfólki og úrræðum inni í skólunum. Þá þurfi stjórnmálamenn að vera miklu betri fyrirmyndir.
Kynferðisofbeldi Börn og uppeldi Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Félagasamtök Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Fleiri fréttir Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu Sjá meira