Pólitísk forgangsröðun í þágu allra Kópavogsbúa Sigurður Kári Harðarsson skrifar 28. apríl 2026 23:33 Núna eru um þrjár vikur til sveitarstjórnarkosninga. Núverandi meirihluti undir forystu Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur verið mjög áberandi í fjölmiðlum upp á síðkastið þar sem fulltrúar hans tala um hversu frábær þjónustan í bænum sé og hvernig samráð við íbúa hafi ráðið ríkjum á yfirstandandi kjörtímabili. Þegar rýnt er í stöðuna teiknast upp allt önnur mynd; mynd sem gengur í berhögg við þann málflutning. Nýtt minnisblað velferðarnefndar Kópavogsbæjar dregur upp dökka mynd af stöðu mála þar sem fjöldi manns bíða eftir lögbundinni þjónustu. Lögbundinn þjónusta sett á ís Í stuttu máli snýst vandinn um fjárskort og forgangsröðun, sem hefur leitt til þess að mikilvæg lögbundin þjónusta er sett á ís. Þrátt fyrir að bærinn viðurkenni vandann heldur bæjarstjóri því fram að Kópavogsbær veiti viðunandi þjónustu. Þetta er dæmi um pólitíska forgansröðun; bærinn hefur bolmagn til þess að sinna þessum lögbundnu verkefnum. Í minnisblaðinu kemur fram að í Kópavogsbæ bíða 115 einstaklingar eftir einstaklingsstuðningi. Eins og staðan er í dag er starfsfólk einungis ráðið inn fyrir einstaklinga í flokki 1 á meðan þjónustuþurfi einstaklingar á biðlistum sem tilheyra flokkum 2 og 3 fá ekki þjónustu. Það liggur ekki fyrir hvenær Kópavogsbær mun saxa á biðlista flokka 2 og 3 því þar skortir fjármagn. Það kemur undirrituðum spánskt fyrir sjónir að heyra bæjarstjóra í Sprengisandi monta sig af því að hafa skorið niður og bætt þjónustu þegar biðlistar eftir stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk hafa tvöfaldast milli ára, frá 16 upp í 32. Það er ekki mikill sómi af því að státa sig af þjónustu bæjarins þegar lögbundin grunnþjónusta er fjársvelt. Vafasöm forgangsröðun Höfum það hugfast að núverandi forgangsröðun, þar sem viðkvæmustu hóparnir sitja á hakanum, er ekki náttúrulögmál. Meint gott gengi í ársreikningi dugar skammt þegar íbúum Kópavogs er neitað um nauðsynlega lögbundna þjónustu sem þeir þurfa til að geta lifað sinn dag. Þessu munum við í Samfylkingu að breyta. Það er sárt að það þurfi að vera sérstakt kosningamál að veita lögbundna þjónustu til þess að gera Kópavogsbúum kleift að athafna sig í hversdagsleikanum en það er einmitt það sem við munum koma til með að gera. Tryggjum að breytingar á þjónustunni verða unnar í samráði við notendur hennar enda eru það þau sem þekkja kerfið best og veitum lögbundna þjónustu. Það verður að vera gott að búa í Kópavogi fyrir alla íbúa Kópavogs. Höfundur skipar 11. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar