Reykjavík er án móttökudeilda, og afleiðingarnar eru komnar í ljós Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar 28. apríl 2026 15:30 Í Reykjavík hefur nemendahópurinn í grunnskólum breyst hratt á skömmum tíma. Á aðeins sex árum hefur fjöldi nemenda með erlent móðurmál aukist verulega, á sama tíma og langstærstur hluti þeirra er nú í skólum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er því ekki dreifð þróun um allt land, heldur þéttur veruleiki í kennslustofum borgarinnar. Samt sem áður hefur skipulagið nánast staðið í stað. Við köllum þetta móttöku, en í raun er þetta ekki móttaka í neinum raunverulegum skilningi. Börn sem tala litla sem enga íslensku eru sett beint inn í stóra bekki þar sem ætlast er til að þau fylgi sama námi og aðrir. Kennarinn á að vera allt í senn: kennari, túlkur og stuðningsaðili. Þetta eru aðstæður sem ganga einfaldlega ekki upp. Í mínu starfi sem kennari í Reykjavík finn ég þetta á hverjum degi. Við erum í raun að kasta börnum í djúpu laugina og vona það besta, en þannig á kerfi ekki að virka.Þetta er ekki spurning um vilja, kennarar leggja sig fram eftir fremsta megni. En þegar rammarnir eru rangir skiptir viljinn einn og sér ekki máli. Það er verið að ætlast til þess að fólk leysi verkefni sem aðstæður leyfa einfaldlega ekki. Í mörgum Evrópulöndum hefur þessu þróun verið viðurkennd og brugðist við henni með skýrum hætti. Þar eru móttökudeildir sjálfsagður hluti af skólakerfinu, þar sem nemendur fá tíma til að ná tökum á tungumálinu og aðlagast nýju umhverfi áður en þeir fara inn í almennan bekk. Þetta er ekki flókin lausn, heldur einföld og rökrétt leið til að mæta breyttum veruleika. Hér í Reykjavík veljum við hins vegar að sleppa þessu skrefi. Börnin eru sett beint inn í kerfið og þegar það gengur ekki er reynt að bregðast við eftir á. Það er bæði dýrara og skilar verri niðurstöðu, fyrir alla aðila. Þetta snýst ekki aðeins um þá nemendur sem eru að læra íslensku, heldur um allt skólastarfið. Þegar stór hluti kennslutímans fer í að útskýra grunnatriði sem sumir nemendur ná ekki utan um, minnkar tíminn sem fer í að sinna öðrum. Afleiðingin er sú að gæði kennslunnar veikjast fyrir allan hópinn. Í mörgum skólum í Reykjavík er þetta ekki lengur undantekning heldur daglegur veruleiki. Það vita þeir sem starfa inni í kerfinu, foreldrar finna fyrir því og börnin bera afleiðingarnar. Það þarf ekki fleiri skýrslur til að benda á þetta, vandinn er augljós.Ef við ætlum að taka skólamál í Reykjavík alvarlega þurfum við að byrja á byrjuninni og byggja kerfið upp þannig að það endurspegli raunveruleikann. Það þýðir að móttökudeildir þurfa að verða eðlilegur og sjálfsagður hluti af skólakerfinu, ekki undantekning eða tilraunaverkefni. Við erum komin á þann stað að núverandi fyrirkomulag er einfaldlega ekki að skila árangri. Það er ekki hægt að ætlast til þess að niðurstaðan verði önnur ef aðferðirnar breytast ekki. Við getum haldið áfram að kasta börnum í djúpu laugina og vona það besta, eða við getum loksins farið að kenna þeim að synda. Núverandi stefna er að skila þessari niðurstöðu, ef við viljum aðra niðurstöðu þarf annað val. Þann 16.maí hefur þú val. Höfundur er grunnskólakennari og í 11.sæti á lista Miðflokksins í komandi kosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Skóla- og menntamál Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar