Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Jakob Bjarnar skrifar 28. apríl 2026 14:10 Jón Pétur sagði færsluna og þann skilning sem í hana hafi verið lagður ekki í samræmi við það sem hann vil standa fyrir né sé það nokkuð sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. vísir/vilhelm Jóni Pétri Zimsen þingmanni Sjálfstæðisflokksins tókst að hleypa öllu í bál og brand á samfélagsmiðlum vegna orðsendingar sem hann ritaði á X – en þar ræddi hann um könnun, sem hann sagði leiða í ljós að konur á aldrinum 15 til 25 ára væru vansælar, án þess að tilgreina um hvaða könnun hann fjallaði. Hann taldi þetta þá vera til marks um að jafnréttisbaráttan væri komin í ógöngur en hefur nú beðist afsökunar. „
Ég vil nota þetta tækifæri til að bregðast við þeirri umræðu sem skapaðist í kjölfar færslu sem ég birti á samfélagsmiðlum síðastliðið sunnudagskvöld. Færslan fór öfugt ofan í marga og það með réttu. Mér þykir það mjög miður. Færslan og sá skilningur sem lagður hefur verið í hana er ekki í samræmi við það sem ég vil standa fyrir né það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir.“ Sandra Sigurðardóttir þingmaður Viðreisnar er meðal þeirra sem hefur fordæmt umdeilda færslu Jóns Péturs.vísir/vilhelm Áður en kom að Jóni Pétri í ræðustól hafði Sandra Sigurðardóttir þingmaður Viðreisnar gagnrýnt Jón harkalega, við þetta sama tækifæri og talað um kerfisbrest og að verið væri að festa misrétti í sessi. „Vandinn er ekki jafnrétti,“ sagði Sandra. Ræðu Jóns Péturs má sjá í spilaranum hér að neðan: Orðavalið árþúsunda náttúruval átti ekki við Og það gat Jón Pétur tekið undir í sinni ræðu þar sem hann sagði það ekki meiningu sína að gera lítið úr rétti kvenna til menntunar, atvinnuþátttöku eða sjálfstæðis þeirra. „Orðavalið „árþúsunda náttúruval“ var rangt, særandi og gaf aðra mynd af afstöðu minni en ég ætlaði. Fyrir það biðst ég einlæglega afsökunar. Ég vil segja skýrt að ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál. Frelsi kvenna til að mennta sig, starfa, stofna fjölskyldu, eignast börn eða ekki, og byggja upp eigið líf er sjálfsagður réttur sem á að vera hafinn yfir allan vafa.“ Afsökunarbeiðnin er eilítið á skjön við það sem Jón sagði í viðtali við Vísi í gær og svo virðist sem hann hafi verið gagnrýndur innan flokksins vegna færslu sinnar: Jón Pétur sagði nú í ræðupúlti þingsins að með færslunni vildi hann vekja athygli á geðheilsu ungs fólks sem sé málefni sem stendur honum nærri eftir áratugi í kennslu og starfi með börnum og ungmennum. Jafnrétti er ekki vandamál Jón Pétur sagði að færslan og sá skilningur sem í hana hefði verið lagður væri ekki í samræmi við það sem hann vill standa fyrir né rímaði sá skilningur við það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. „Með henni vildi ég ekki gera lítið úr rétti kvenna til menntunar, atvinnuþátttöku eða sjálfstæðis þeirra. Orðavalið „árþúsunda náttúruval“ var ekki gott, særandi og gaf aðra mynd af afstöðu minni en ég ætlaði. Fyrir það biðst ég einlæglega afsökunar,“ sagði Jón Pétur. Hin umdeilda færsla Jóns Péturs sem olli verulegum skjálfta. Þá undirstrikaði Jón Pétur og vildi að það kæmi skýrt fram að hann teldi hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál. „Frelsi kvenna til að mennta sig, starfa, stofna fjölskyldu, eignast börn eða ekki, og byggja upp eigið líf er sjálfsagður réttur sem á að vera hafinn yfir allan vafa. Með færslunni vildi ég vekja athygli á geðheilsu ungs fólks. Það er málefni sem stendur mér nærri eftir áratugi í kennslu og starfi með börnum og ungmennum.“ Framsetningin var röng Jón Pétur sagðist hafa áhyggjur af kvíða og einmanaleika en hann hafi ekki vandað orðfæri sitt sem skyldi. „En ég gerði því máli enga greiða með orðalagi mínu. Ætlun mín var ekki að benda fingri á konur heldur að reyna að varpa ljósi á vanda sem snertir samfélagið allt. Framsetning mín var röng. Það voru mín mistök og ég ber ábyrgð á þeim.“ Jón Pétur iðrast nú sáran og sér eftir framsetningu sinni.vísir/vilhelm Þingmaðurinn sagði Sjálfstæðisflokkinn flokk frelsis en frelsi til að tjá sig fylgi ábyrgð og þegar menn orði hlutina illa þurfi þeir að viðurkenna það og gera betur. Það hyggst Jón Pétur gera. „Ég vona að við getum áfram rætt geðheilsu ungs fólks af alvöru, á grundvelli virðingar, staðreynda og þess frelsis sem við viljum öll verja.“
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Jafnréttismál Samfélagsmiðlar Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Sjá meira