Kaupleiga er bjargráð – ekki brask Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir skrifar 28. apríl 2026 10:12 Það er þyngra en tárum taki að heyra af ráðherra og aðstoðarmanni hans tala um frekju Grindvíkinga. Grindvíkingar hafa skapað tugi milljarða í tekjur fyrir þjóðarbúið í gegnum tíðina Grindvíkingar eru ekki að biðja um ölmusu, við erum ekki að betla neitt af ríkinu. Við viljum geta keypt húsin okkar aftur á sanngjörnu markaðsverði, þegar markaðsverð liggur fyrir. Við viljum koma húsunum í vinnu því nú þegar liggja mörg þeirra undir frekari skemmdum. Björgum fjármunum ríkisins með því að aðhafast eitthvað í húsnæðismálum í Grindavík í stað þess að gera ekki neitt. Um 40% íbúa Grindavíkur hafa sýnt kaupleigu sérstakan áhuga. Hér er ekki verið að biðja um neitt gefins, heldur er þetta skýrt ákall um sveigjanleika til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um framtíðina. Fulltrúar Fasteignafélagsins Þórkötlu hafa áður viðurkennt að eftirspurn eftir kaupleigu sé talsverð, en hafa kallað eftir lagabreytingum eða skýrara rými frá yfirvöldum til að útfæra hana. Sagt hefur verið að ekki megi „hvetja fólk til að braska með eignir“ og koma verði í veg fyrir utanaðkomandi fasteignabrask áður en innviðir eru tilbúnir. Að hjálpa fólki, sem hefur flutt tvisvar til fjórum sinnum á síðustu tveimur árum, að komast heim í sitt eigið hús er ekki brask. Það er mannúð. Stjórnvöld verða að gefa Fasteignafélaginu Þórkötlu heimild til að bjóða upp á raunhæfa og sveigjanlega leigu og kaupleigusamninga. Án þess getur fólk ekki mátað sig við aðstæður í bænum án mikillar fjárhagslegrar áhættu. Markaðsvirði eigna í Grindavík er ekki vitað á þessari stundu. Hættið að horfa á Grindvíkinga sem vandamál eða reikningshald og leyfið okkur að hefja endurreisnina. Grindavík verður ekki reist við nema með Grindvíkingum. Við krefjumst þess að Fasteignafélaginu Þórkötlu verði leyft að leggja sín spil á borðið tafarlaust. Höfundur er bæjarfulltrúi í Grindavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Grindavík Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Það er þyngra en tárum taki að heyra af ráðherra og aðstoðarmanni hans tala um frekju Grindvíkinga. Grindvíkingar hafa skapað tugi milljarða í tekjur fyrir þjóðarbúið í gegnum tíðina Grindvíkingar eru ekki að biðja um ölmusu, við erum ekki að betla neitt af ríkinu. Við viljum geta keypt húsin okkar aftur á sanngjörnu markaðsverði, þegar markaðsverð liggur fyrir. Við viljum koma húsunum í vinnu því nú þegar liggja mörg þeirra undir frekari skemmdum. Björgum fjármunum ríkisins með því að aðhafast eitthvað í húsnæðismálum í Grindavík í stað þess að gera ekki neitt. Um 40% íbúa Grindavíkur hafa sýnt kaupleigu sérstakan áhuga. Hér er ekki verið að biðja um neitt gefins, heldur er þetta skýrt ákall um sveigjanleika til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um framtíðina. Fulltrúar Fasteignafélagsins Þórkötlu hafa áður viðurkennt að eftirspurn eftir kaupleigu sé talsverð, en hafa kallað eftir lagabreytingum eða skýrara rými frá yfirvöldum til að útfæra hana. Sagt hefur verið að ekki megi „hvetja fólk til að braska með eignir“ og koma verði í veg fyrir utanaðkomandi fasteignabrask áður en innviðir eru tilbúnir. Að hjálpa fólki, sem hefur flutt tvisvar til fjórum sinnum á síðustu tveimur árum, að komast heim í sitt eigið hús er ekki brask. Það er mannúð. Stjórnvöld verða að gefa Fasteignafélaginu Þórkötlu heimild til að bjóða upp á raunhæfa og sveigjanlega leigu og kaupleigusamninga. Án þess getur fólk ekki mátað sig við aðstæður í bænum án mikillar fjárhagslegrar áhættu. Markaðsvirði eigna í Grindavík er ekki vitað á þessari stundu. Hættið að horfa á Grindvíkinga sem vandamál eða reikningshald og leyfið okkur að hefja endurreisnina. Grindavík verður ekki reist við nema með Grindvíkingum. Við krefjumst þess að Fasteignafélaginu Þórkötlu verði leyft að leggja sín spil á borðið tafarlaust. Höfundur er bæjarfulltrúi í Grindavík.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar