Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Bjarki Sigurðsson skrifar 27. apríl 2026 21:00 Húsnæði BSO stendur við Strandgötu á Akureyri. Vísir/Einar Bifreiðastöð Oddeyrar hefur fallið frá dómsmáli á hendur Akureyrarbæ og verður húsnæði stöðvarinnar yfirgefið fyrir vikulok. Formaður bæjarráðs telur niðurstöðuna farsæla fyrir báða aðila.
Eftir langan aðdraganda hefur ákvörðun verið tekin um hvað verður um húsnæði BSO á Akureyri. Bílstjórarnir þurfa að yfirgefa stöðina fyrir föstudaginn 1. maí. Stöðin er eitt helsta kennileiti bæjarins en þarf nú að víkja. Stefnt er að því að reisa íbúðahús þar á næstu árum en framkvæmdir geta ekki hafist fyrr en húsið er farið. Bílstjórar BSO hafa síðustu ár staðið í stappi við bæjaryfirvöld og viljað halda húsinu en ekki haft erindi sem erfiði. Í síðustu viku komust deiluaðilar að samkomulagi. Í því segir að BSO fái 5 og hálfa milljón króna verði húsið yfirgefið fyrir 1. maí og ef félagið fellur frá dómsmáli á hendur bænum. „Þetta eru búnir að vera margir fundir og gott samstarf við BSO. Það hefur verið vitað lengi að þetta fræga hús væri að fara. Ég held að niðurstaðan sé mjög góð. Slökkviliðið mun hafa æfingu hér sem við borguðum fyrir. Það verður reykköfunaræfing með gervireyk og því mun ekkert skemmast. Það verður auglýst að hægt verði að fjarlægja húsið. Það hafa margir lýst áhuga á að færa húsið, hvort það sé hægt kemur í ljós, en þessi menningararfur gæti verið í bænum áfram,“ segir Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar. Heimir Örn Árnason er formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar.Vísir/Vilhelm Húsið verði tekið í sundur og vonandi reist á ný á nýjum stað. Bílstjórarnir lýstu í síðasta mánuði óánægju sinni með brotthvarfið en Heimir telur niðurstöðuna góða fyrir alla. „Þetta var samþykkt og ég er búinn að heyra mjög oft í þeim. Ég held að þeir séu sáttir og horfi til framtíðar. Þeir vilja pottþétt sjá húsið sitt annars staðar í bænum en það á bara eftir að koma í ljós,“ segir Heimir.
Akureyri Leigubílar Hús og heimili Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira