Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar 26. apríl 2026 09:30 Fyrir viku síðan steig ég fram í fjölmiðlum og sagði að staðan í samgöngum við Vestmannaeyjar væri óboðleg. Því miður hefur ekkert breyst. Ég er nú stödd í Eyjum og hef verið að ræða við fólk sem á vart orð yfir þessari stöðu. Það er skiljanlegt. Samgöngur eru lífæð Vestmannaeyja. Vestmannaeyjar eru ekki jaðarsamfélag sem ríkið getur sett á bið á meðan það lofar fögrum fyrirheitum. Eyjarnar eru öflugt samfélag sem stendur undir verðmætasköpun, útflutningi, fjölbreyttu atvinnulífi og vaxandi ferðaþjónustu. Þess vegna er það alvarlegt þegar Landeyjahöfn er enn lokuð á þessum tima, Herjólfur siglir til Þorlákshafnar á hálfu afli og ferðum hefur fækkað úr sjö á dag niður í tvær. Vestmannaeyjabær hefur bent á að frá áramótum hafi aðeins verið farnar 146 ferðir í stað 511 við eðlilegt ástand. Það segir allt sem segja þarf um umfang vandans. Daglegt líf Eyjamanna er undir góðum samgöngum komið. Fólk þarf að komast til læknis, til skóla og vinnu og heim aftur. Fyrirtæki þurfa að koma vörum, hráefni og búnaði milli lands og Eyja. Ferðaþjónustan þarf fyrirsjáanleika og ekki tilærslur milli hafna og sífellda óvissu. Þegar Herjólfur siglir svo á einungis hálfu afli, eins og staðan er núna, verður þetta auk þess öryggismál. Ég sagði fyrir viku að þetta væri algjörlega óboðleg staða. Það stend ég við. Ég sagði líka að Vestmannaeyingar ættu ekki að lifa á yfirlýsingum og frösum ríkisstjórnarinnar. Það gildir enn. Fólkið í Eyjum þarf ekki fleiri frasa. Það þarf samgöngur sem virka í reynd. Nú verður ríkið að stíga fram með skýrum aðgerðum. Í fyrsta lagi þarf daglega áætlun um dýpkun Landeyjahafnar og upplýsingar um hvaða dýpi hefur náðst. Bæjarráð Vestmannaeyja hefur þegar krafist þess að kannað verði hvort öflugri dýpkunaraðili geti komið fyrr til verks. Í öðru lagi þarf að fjölga flugferðum tafarlaust og tryggja stuðning við nauðsynlegar ferðir meðan þessi staða varir. Ráðuneytið hefur þegar þurft að framlengja ríkisstyrkt flug ítrekað, fyrst til miðs apríl og síðan til mánaðarmóta, sem sýnir að flugið er ekki aukaatriði heldur hluti af neyðarviðbrögðum. En betur má ef duga skal. Í þriðja lagi þarf bindandi neyðaráætlun fyrir sjóleiðina. Herjólfur III þarf að vera tilbúinn sem raunhæf afleysing sem fyrst, og ríkið verður að skilgreina hvernig bregðast skuli við ef veður versnar eða frekari bilun kemur upp á Herjólfi IV. Bæjarráð hefur réttilega sagt að Baldur dugi ekki einn og sér fyrir þarfir Vestmannaeyja. Samgöngur eru lífæð samfélagsins. Sem þingmaður Suðurkjördæmis og þar með Vestmannaeyja mun ég halda áfram að beita mér af fullum þunga í þessu máli. Þegar ríkið bregst í samgöngum bregst það fólkinu sjálfu. Vestmannaeyingar eiga betra skilið og það verður að gerast núna. Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðrún Hafsteinsdóttir Herjólfur Vestmannaeyjar Sjálfstæðisflokkurinn Samgöngur Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar