„Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Sindri Sverrisson skrifar 21. apríl 2026 21:59 Arnar Guðjónsson var augljóslega ósáttur eftir að Seth LeDay hoppaði utan í hann og vel valin orð voru látin falla. Skjáskot/Sýn Sport Það fór ekki vel á með þeim Seth LeDay og Arnari Guðjónssyni í Síkinu í kvöld þegar Stjörnumaðurinn hoppaði og skoppaði utan í Arnar við lok þriðja leikhluta, í undanúrslitum Bónus-deildarinnar í körfubolta.
Atvikið átti sér stað í þann mund sem flautið gall og þriðja leikhluta lauk. LeDay, sem átti risastóran þátt í naumum sigri Stjörnunnar gegn Tindastóli í kvöld, hoppaði þá utan í Arnar eins og sjá má í lok myndbandsins hér að neðan. Klippa: Arnar ósáttur við Seth LeDay Þeir létu einhver orð falla og Andri Már Eggertsson spurði Arnar út í þetta eftir spennuleikinn mikla í kvöld: „Þegar hann hljóp á mig og sagði mér að fokka mér?“ spurði Arnar og var augljóslega ekki skemmt. „Ég bað hann bara um að segja mér ekki að fokka mér, ég kynni ekki að meta það,“ bætti hann við. LeDay var hins vegar í miklu stuði innan vallar í kvöld og endaði með 27 stig og 15 fráköst. Hann var ekki síst öflugur í lokin og skoraði sex af síðustu átta stigum Stjörnumanna, þar á meðal úr vítaskotunum tveimur, fjórum sekúndum fyrir leikslok, sem á endanum tryggðu sigurinn. Stuðningsmenn Tindastóls reyndu þá allt til þess að trufla Bandaríkjamanninn sem stóðst hins vegar pressuna vel. Stjarnan er því með 1-0 forskot eftir fyrsta leik en Tindastóll getur jafnað á laugardagskvöld þegar liðin mætast í Garðabænum. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaeinvígið.
Bónus-deild karla Tindastóll Stjarnan Mest lesið Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Íslenski boltinn „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ Golf Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Fótbolti Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Bandaríkin hjálpa Írönum fyrir næsta leik á HM Fótbolti „Alfreð er æðsti klerkur þar“ Fótbolti „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Forseti FIFA vill drykkjarhlé hér eftir á öllum heimsmeistaramótum Fótbolti Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Körfubolti Fleiri fréttir Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Sjá meira