Neytendur

Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þeir sem hafa fest kaup á hakkinu ættu ekki að borða það.
Þeir sem hafa fest kaup á hakkinu ættu ekki að borða það. Matvælastofnun

Matvælastofnun innkallar tvær framleiðslulotur af Bónus Nautgripahakki frá Ferskum kjötvörum vegna gruns um salmonellu.

Um er að ræða pakka með sex hundruð grömmum af nautahakki merktum versluninni Bónus. Framleiðandinn er Ferskar kjötvörur.

Umræddar framleiðslulotur eru með lotnúmerin 105-6-106-04 og 105-6-107-01 og er síðasti notkunardagur 27. apríl 2026.

Þeir sem hafa fest kaup á hakkinu skulu ekki neyta hennar heldur farga eða skila í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×