Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir skrifar 14. apríl 2026 18:03 Íbúaráðin góður samráðsvettvangur Í þrjú ár var ég formaður íbúaráðs Grafarvogs en þar hef ég búið í tæp fjörtíu ár. Ég gegndi því hlutverki sem fulltrúi Framsóknar. Ég vann þar með frábæru fólki úr hverfinu, fólki sem tengdist ólíkum hópum íbúa. Það lögðu sig allir fram um að vinna vel fyrir hverfið sitt, hafa augu og eyru opin og ráðið fylgdi málum hverfisins eftir eins og unnt var. Íbúaráðin í borginni voru samráðsvettvangur, hluti af auknu íbúalýðræði og mikilvægur tengiliður milli borgarstjórnar, embættismanna borgarinnar, íbúa, félagasamtaka og hagsmunaaðila í hverfinu. En með því að leggja íbúaráð niður var slitið á þessi formlegu og óformlegu tengsl. Ráðin gengu frá þeim verkefnum sem fyrir lágu án þess að ná að ljúka þeim á viðunandi hátt. Það var slæmt því mörg mikilvæg verkefni sem biðu fengu ekki framgang og gagnlegar samskiptaleiðir út í hverfunum rofnuðu. Borgarfulltrúar eiga að hlusta Að mínu mati er það bæði gott og nauðsynlegt fyrir þá sem stjórna borginni hverju sinni að hafa virkar tengingar inn í nærsamfélagið. Það kom til dæmis berlega í ljós á fundi fyrir skemmstu með núverandi borgarstjóra og íbúum í Grafarvogi. Sökum tengslaleysis við nærsamfélagið varð borgarstjóri ítrekað að óska eftir því að embættismenn svöruðu spurningum fundarmanna – hún var alls ekki nægilega vel inni í málum sem brunnu á fólki. Það er einnig gott fyrir íbúana að hafa aðgang að fulltrúum sem hafa það hlutverk að koma sjónarmiðum á framfæri, hafa aðkomu að ákvarðanatöku í veigamiklum framkvæmdum t.d. lagning Sundabrautar, fyrirkomulag Borgarlínu og aðstöðu í nýjum hverfum eins og í Gufunesi. Þau voru ófá erindi sem íbúaráðin komu að t.d. mál sem tengdust umferðaröryggi, félagsstarfi í hverfum borgarinnar, snjómokstri og margt fleira sem tengdist daglegu lífi fólks í borginni. Þeirra fyrsta verk var að klippa á virkt íbúalýðræði – og ekkert kom í staðinn Því kom það mér í opna skjöldu þegar núverandi meirihluti í borginni ákvað að leggja íbúaráðin niður. Það var ákvörðun sem gerð var án þess að kynna þær fyrirætlanir formönnum ráðanna og án þess að nokkuð annað sambærilegt hafi komið í staðinn. Auðvitað má alltaf skoða, meta og endurbæta verklag en að leggja íbúaráðin niður og klippa þannig á eina virkustu samskiptaleið stjórnenda borgarinnar við íbúa er mér óskiljanlegt með öllu, sérstaklega þegar ekkert annað kemur í staðinn. Það skýtur líka skökku við þar sem í núverandi meirihluta eru flokkar sem hafa á góðum stundum talað mikið um aukið íbúalýðræði og að stytta boðleiðir – en þeirra fyrsta verk var að tilkynna í fjölmiðlum að leggja ætti ráðin niður. Að segja eitt en gera annað Ekki hvað síst er ég hugsi yfir þessari aðgerð þegar ég les lýðræðisstefnu Reykjavíkurborgar og áherslur tengdar samráði við íbúa. En þar stendur m.a. að einn megintilgangur sveitarfélaga sé að færa hið pólitíska vald nær borgurunum. Tekið er fram að m.a. sé tilgangur lýðræðisstefnunnar að styðja við lýðræðislega þátttöku íbúa og auka möguleika þeirra til að hafa áhrif á ákvarðanatöku, jafnframt leið fyrir kjörna fulltrúa til að þekkja betur óskir borgarbúa. En þrátt fyrir þessi góðu markmið fannst núverandi meirihluta rétt að vinna þvert á þessa stefnu. Áherslum Framsóknar vísað frá í borgarstjórn Það er augljóslega enginn vilji til að bregðast við eða taka á dagskrá funda borgarstjórnar ítrekaðar óskir borgarfulltrúa Framsóknarflokksins um umræðu um íbúðalýðræði. Málið hefur ekki enn komið til umræðu og oftar en einu sinni verið frestað. Því finnst mér rétt að benda hér að lokum á stefnu Framsóknar sem vill m.a. leggja áherslu á að efla lýðræðislega þátttöku ólíkra hópa íbúa og leita leiða til að fá íbúa til að taka meiri þátt í stefnumótun í sínu nærsamfélagi. Ég hvet kjósendur í Reykjavík til að meta vinnubrögð núverandi meirihluta og gera upp hug sinn. Finnst fólki það boðlegt að klippa svona á virka boðleið á milli íbúa og stjórnenda borgarinnar? Ég trúi því að fólki hugnist alls ekki þessi vinnubrögð – endurvekjum formlegan samráðsvettvang strax eftir kosningar. Höfundur er fyrrverandi formaður íbúaráðs Grafarvogs og skipar 15. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Reykjavík Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar