Handbolti

„Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Garðar Ingi Sindrason í leik gegn Haukum fyrr á tímabilinu. Liðin berjast nú um sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.
Garðar Ingi Sindrason í leik gegn Haukum fyrr á tímabilinu. Liðin berjast nú um sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. vísir/diego

Garðar Ingi Sindrason er að leika sína síðustu leiki fyrir FH, allavega í bili. Hann hefur samið við þýska úrvalsdeildarliðið Gummersbach og gengur í raðir þess í sumar.

FH tók forystuna í einvíginu gegn Haukum í undanúrslitum Olís-deildar karla með sigri í þriðja leik liðanna, 27-23, í gærkvöldi.

Garðar segir eilítið sérstakt að spila leikina í úrslitakeppninni, vitandi að þeir verði hans síðustu fyrir FH í bili.

„Tilfinningin er svolítið sérstök. Það er erfitt að kveðja uppeldisfélagið en þetta hefur alltaf verið markmiðið, að fara út, þannig að það verður auðvitað erfitt og skrítið en ég ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra,“ sagði Garðar í samtali við íþróttadeild.

Garðar hefur verið í stóru hlutverki hjá FH undanfarin tvö tímabil og meðal annars spilað með liðinu í Evrópudeildinni. Á síðasta tímabili mætti FH meðal annars Gummersbach, verðandi vinnuveitendum Garðars.

En kom tækifærið að fara í svona stórt félag fyrr en hann bjóst við?

„Ekkert samkvæmt neinu plani eða einhverju. Þetta kom bara og maður verður að stökkva á það,“ svaraði Garðar.

Gummersbach hefur verið í stöðugri sókn síðan Guðjón Valur Sigurðsson tók við liðinu 2020. Gummersbach er í 4. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og hefur verið á góðri siglingu síðustu vikurnar. Strákarnir hans Guðjóns Vals hafa unnið tíu deildarleiki í röð, eða alla leikina í þýsku úrvalsdeildinni á árinu 2026.

Garðar hlakkar skiljanlega til að fara til svona sterks liðs.

„Já, algjörlega. Þetta er frábært lið og það eru bara ógeðslega spennandi tímar framundan. Ég er gríðarlega spenntur,“ sagði Garðar en tveir Íslendingar leika núna með Gummersbach; Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×