Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar 11. apríl 2026 15:00 Eins og fram hefur komið í fréttum ríkir framleiðslukreppa í íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum með þeim afleiðingum að atgervisflótti blasir við. Á sama tíma er mikið fjallað um árangur Norðmanna á þessu sviði, með tilheyrandi verðlaunaregni og sívaxandi útflutningsverðmæti. Svipað hefur áður gerst í Danmörku, þar sem leiknir sjónvarpsþættir eru löngu orðnir mikilvæg útflutningsvara. Allir vita að þessi árangur er ekki afleiðing þess að þarlendir stjórnmálamenn tali fallega um norska eða danska menningu á tyllidögum. Hann er afrakstur skýrrar sýnar og aukinnar fjárfestingar fyrir allmörgum árum. Nýlega var greint frá því að rekstrartekjur í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði á Íslandi árið 2024 námu alls um 50 milljörðum króna. Greinin skilaði líka rúmum 35 milljörðum í beinum sköttum í ríkissjóð á árunum 2019-2023, en á sama tímabili námu opinber famlög til hennar 23 milljörðum. Eins liggur fyrir að meira en þriðji hver erlendur ferðamaður sem hingað kemur, fékk hugmyndina að ferðinni út frá íslensku landslagi í sjónvarpsþáttum eða bíómyndum. Þetta eru tölur af þeirri stærðargráðu að ljóst er að greinin skiptir verulegu máli í efnahagsreikningi þjóðarbúsins. En þrátt fyrir að oft hafi verið sýnt fram á að samanlögð fjárfesting hins opinbera í þessari grein skili sér með ríkulegri ávöxtun beint í ríkiskassann fyrir utan allt annað, starir fjárveitingavaldið aðeins dæsandi á gjaldahliðina í stað þess að horfa á ávöxtunina og bæta í. Afleiðingin er stöðnun og alger skortur á fyrirsjáanleika fyrir greinina. Auðvitað eru núverandi stjórnvöld ekki höfundar þessarar stöðu en með hverjum mánuði sem líður án aðgerða vex óhjákvæmilega ábyrgð þeirra. Endurgreiðslan og 'útgjaldaliðurinn' Jodie Foster Stundum virðast meira að segja kjörnir fulltrúar okkar á Alþingi ekki átta sig á því að lagasetning þeirra sjálfra um svonefnda Endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar er ekki hreinn útgjaldaliður eins og til dæmis kostnaður við hafnarbætur eða viðhald vega. Hún er - eins og nafnið ber með sér - endurgreiðsla á hluta þess kostnaðar sem til fellur við kvikmyndagerð. Kostnaðar, sem meðal annars felst í leigu á bílum og hótelherbergjum, kaupum á hvers kyns efnivið og kosti og skapar þannig verulegar tekjur í mörgum öðrum atvinnugreinum. Ef upphæðirnar sem fara í endurgreiðslur eru háar, líkt og átti við um True Detective seríuna sem var tekin upp hérlendis, þá er það einfaldlega vegna þess að enn stærri fjárhæðir runnu um æðar íslenska hagkerfisins vegna viðkomandi verkefnis og sköpuðu aukna velsæld víðs vegar um landið. Endurgreiðslan nýtist ekki aðeins erlendum stórverkefnum. Á meðan Kvikmyndasjóður er stórkostlega vanfjármagnaður miðað við fyrri áform um hlutverk hans og þróun sambærilegra sjóða og Sjónvarpssjóður enn bara orðin tóm, er hún líka forsenda þeirrar kröftugu, en undirfjármögnuðu, framleiðslu á sjónvarpsþáttaröðum sem hér á sér stað, ekki síst fyrir öflugan atbeina Símans. Til staðar: Sjálfstæð menning og tunga í enskuvæddum heimi Sem formaður Félags leikskálda og handritshöfunda og starfandi handritshöfundur til áratuga leitar oft á mig þessi spurning: Af hverju erum við að þessu? Ég hugsa að flest okkar svari þessu með einhverri útgáfu af eftirfarandi: - Mér finnst það skipta máli að segja sögur úr þeim veruleika þar sem ég bý og að vera í lifandi sambandi við mitt fólk og mitt samfélag og geta haft áhrif á hvort tveggja, vonandi til góðs, með því að bregða upp einhvers konar spegli. Bæði Danir og Norðmenn líta á eigin málsamfélög sem dvergvaxin og telja að þess vegna þurfi stöðuga öfluga opinbera fjárfestingu í þessari áhrifamestu list- og atvinnugrein samtímans, sem nýtir sjálft tungumálið, auk tungumáls kvikmyndalistarinnar til að spegla, viðhalda og efla eigin menningu í öllum sínum fjölbreytileika. Þessi sýn og fjárfesting hefur leitt af sér uppbyggingu í þarlendri kvikmyndagerð bæði á sviði bíómynda og - ekki síður - í framleiðslu leikinna þáttaraða, sem skilar af sér verkum, sem þrátt fyrir að vera sannarlega samin fyrir innlenda áhorfendur og á þeirra tungumáli, vinna reglulega til alþjóðlegra verðlauna og hljóta dreifingu um allan heim. Vantar: Fyrirsjánleika, framtíðarsýn og fjárfestingu Ég hef verið svo heppinn að starfa bæði í Danmörku og í Noregi og get því auðveldlega vitnað um það að árangur Dana og Norðmanna í kvikmyndagerð fyrir bíó og sjónvarp á síðustu áratugum er ekki tilviljun. Hann er beinn afrakstur af því sem öllu máli skiptir til að breyta fögrum orðum og fyrirætlunum í veruleika, þ.e. raunverulegri fjárfestingu. Hér á landi höfum við sýnt fram á að við getum gert mjög vel á þessum sviðum. Hér er sannarlega mikið af frábæru hæfileikafólki sem er tilbúið að leggja mjög hart að sér til að ná árangri. Það sem háir okkur er skortur á fyrirsjánleika, framtíðarsýn og raunverulegri fjárfestingu í framtíð íslenskrar menningar og tungu. Höfundur er handritshöfundur og formaður Félags leikskálda og handritshöfunda Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar