Segir að Ekroth verði að gera betur Valur Páll Eiríksson skrifar 11. apríl 2026 12:15 Oliver Ekroth gerði mistök í marki Breiðabliks í gærkvöld. Það segir þjálfari hans Sölvi Geir. Samsett/Vísir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var afgerandi í svörum aðspurður um markið sem liðið fékk á sig í fyrsta leik Bestu deildar karla í fótbolta í gær. Oliver Ekroth hafi gert mistök sem kostuðu mark.
Kristófer Ingi Kristinsson kom Breiðabliki í forystu snemma leiks er Víkingur og Breiðablik opnuðu tímabilið í Bestu deild karla með 1-1 jafntefli fyrir fullum velli í Víkinni í gær. Vel útfærð skyndisókn eftir að Höskuldur Gunnlaugsson hafði unnið boltann í kjölfar misheppnaðarar sendingar Helga Guðjónssonar lauk með marki Kristófers eftir frábæra fyrirgjöf Ágústs Orra Þorsteinssonar frá hægri. Varnarleikur Víkings í markinu var þó ekki til útflutnings. Oliver Ekroth hélt um höfuð sér eftir markið þar sem hann leyfði boltanum að rúlla framhjá sér fyrir fætur Kristófers sem skoraði. Sölvi Geir Ottesen var spurður um varnarleikinn í markinu, og hvort einhver skortur á samskiptum eða misskilningur hefði átt sér stað milli Ekroth og markvarðarins Ingvars Jónssonar. Ég held ég verði nú að krefjast þess að Oliver geri betur. Sem varnarmaður áttu aldrei að halda neitt. Þú átt bara að taka ákvörðunina og hreinsa boltann í burtu. Mér fannst hann geta hreinsað þarna, sagði Sölvi í samtali við Sýn Sport eftir leik. En það kom smá hik og honum fannst eins og Ingvar ætti að taka boltann. Við þurfum bara að koma í veg fyrir þetta, sagði Sölvi jafnframt. Liðin tvö sætta sig við eitt stig úr fyrsta leik en Víkingur fer norður um heiðar og sækir KA heim næsta föstudag. Á sama tíma mætir Breiðablik ÍA í Kópavogi. Besta deildin - sunnudagur 12. apríl 13:00 ÍBV - FH (Sýn Sport Ísland) 16:45 Besta messan (Sýn Sport Ísland) 17:00 KR - Keflavík (Sýn Sport Ísland 2) 17:00 Valur - Þór (Sýn Sport Ísland 4) 17:00 KA - Stjarnan (Sýn Sport Ísland 5) 19:30 Fram - ÍA (Sýn Sport Ísland) 21:35 Stúkan (Sýn Sport Ísland)
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira