Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson skrifar 10. apríl 2026 07:01 „Kerfið er of þungt.“ Þessi setning hefur fylgt mér úr mörgum samtölum sem ég hef átt við borgarbúa, fólk í atvinnulífinu og starfsfólk í framlínunni síðustu vikur. Það hefur verið ótrúlega gefandi að koma nýr inn í stjórnmálin í Reykjavík. Ég hef nýtt tímann í að hlusta. Og þótt flest fólk sé sammála um að Reykjavík sé dásamleg borg, þá er það líka sammála um annað: Flækjustigið er of hátt og afgreiðsla mála tekur of langan tíma. Höfuðborgin okkar á að vera staður þar sem hlutirnir gerast, ekki staður þar sem hugmyndir deyja í biðröð. Ég kem inn í þetta verkefni með reynslu úr sjálfstæðum rekstri. Ég þekki það á eigin skinni hvernig flókið regluverk og svifasein stjórnsýsla getur tafið og jafnvel komið í veg fyrir góð verkefni. Við eigum að rúlla út rauða dreglinum fyrir fólk sem vill láta gott af sér leiða, hvort sem það er að byggja húsnæði eða opna fyrirtæki. Borgin á að vera með í liðinu, ekki hindrun. Samfylkingin hefur þegar sýnt á landsvísu að það er hægt að hrista upp í kerfum sem staðið hafa í stað í áratugi. Við höfum sameinað stofnanir og einfaldað leyfisveitingar með hagsmuni notenda að leiðarljósi. Þessari vinnu verðum við að halda áfram af fullum krafti í Reykjavík. Gott dæmi um þörfina á hugarfarsbreytingu er hvernig þú opnar veitingastað í Stokkhólmi miðað við Reykjavík. Ég þekki þetta ferli ágætlega hérna heima: hátt flækjustig og langt og flókið ferli er lýjandi. Félagi minn í Stokkhólmi, sem opnaði veitingastað í fyrra, lýsti þessu ferli fyrir mér: Þú færð gátlista. Ef þú uppfyllir kröfurnar, þá opnar þú. Þú þarft ekki að bíða eftir „leyfi“ til að hefja rekstur. Borgin mætir svo í úttekt til að staðfesta að allt sé í lagi. Þar er grunnstefið traust. Rekstraraðilinn upplifir að borgin vinni með honum. Svona á þetta að vera hér: skýr rammi, stafræn og hröð afgreiðsla og gagnkvæmt traust. Með því að einfalda kerfin, nýta tækni og gervigreind til að sjálfvirknivæða svör og leyfisveitingar, getum við losað um dýrmætan tíma og fjármagn. Það er hægt að hagræða í yfirbyggingunni án þess að það bitni á gæðum þjónustunnar. Þvert á móti, með því að létta á og stytta biðtíma, búum við til svigrúm til að gera það sem mestu máli skiptir, að hlúa að fólkinu í borginni, menntun barna okkar og velferð allra hópa. Öflugt atvinnulíf er forsenda velferðar og jöfnuðar. Reykjavík á að vera borg þar sem það er einfalt að lifa, starfa og skapa. Einföldum fólki lífið frekar en að flækja það. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Reykjavík Pétur Marteinsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar