Viðskipti innlent

Þrettán pró­sent hækkun á bensíni að mestu vegna Írans­stríðs

Kjartan Kjartansson skrifar
Ódýrasta bensínið var hjá Costco en það var einnig það sem hækkaði mest.
Ódýrasta bensínið var hjá Costco en það var einnig það sem hækkaði mest. Vísir/Vilhelm

Bensínverð hefur hækkað um þrettán prósent frá áramótum samkvæmt tölum Alþýðusambands Íslands. Sú hækkun kom nær öll fram í síðasta mánuði eftir að Bandaríkjamenn og Ísraelar fóru með vopnum gegn Írönum sem keyrði upp heimsmarkaðsverð á olíu.

Viðmiðið sem verðlagseftirlit ASÍ er vikumeðaltal á lægsta bensínverði. Það hefur hækkað um 24 krónur frá áramótum eða tæp þrettán prósent. 

ASÍ segir hækkunina aðeins komna að hluta til inn í verðbólgumælingar Hagstofunnar. Verðið hafi hækkað um rúmlega átta prósent frá því að hún tók stöðuna vegna vísitölu neysluverð 13. mars.

Búist er við því að bensínverð lækki eftir að samkomulag náðist um vopnahlé í Íran í gær. Heimsmarkaðverðs er sagt hafa lækkað um fimmtán prósent eftir tíðindin af því. Mikil óvissa er þó enn sögð ríkja enda vopnahléið aðeins tímabundið. Truflanir á flutningi olíu um Hormússundi geti áfram haldið uppi olíuverði á næstunni.

Mestar hækkanir voru á bensínlítranum hjá Costco sem er þó með lægsta eldsneytisverðið. Þar hækkaði lítrinn um 39 krónur á sama tíma og lægsta verð hækkaði um 27 til þrjátíu krónur hjá söluaðilum með fleiri en eina dælustöð í mars.

Rúmlega 51 krónu munaði á ódýrasta bensínlítranum hjá Costco, rúmum 168 krónum, og þeim dýrasta hjá Olís í Hrauneyjum, rúmum 219 krónum í upphafi mars.

Bensínverð lækkaði um áramótin eftir að kílómetragjald leysti olíu- og bensíngjöld af hólmi. Tugir þúsunda undirskrifta hafa safnast gegn kílómetragjaldinu að undanförnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×