Horn í síðu fyrirtækjareksturs Diljá Matthíasardóttir skrifar 2. apríl 2026 15:30 Nú er framkomin fjármálaáætlun ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins fyrir árin 2027 til 2031 og þar kennir ýmissa grasa. Einfalt væri að skrifa grein um hin ýmsu áform sem í henni eru að finna og snerta ferðaþjónustu og aðrar atvinnugreinar með einum eða öðrum hætti. Aftur á móti er maður nú ansi hugsi yfir þeirri stöðu sem fyrirtæki landsins eru sett í, sí og æ. Þar sem framganga stjórnvalda virðist vera orðin einn veigamesti óvissuþátturinn í rekstri fyrirtækja á Íslandi. Í tilfelli ferðaþjónustunnar hafa á umliðnum árum breytingar á sköttum og gjöldum dunið á atvinnugreininni, ýmist beint og óbeint, flestar án eðlilegs fyrirvara. Má þar meðal annars nefna hækkanir á gistináttaskatti og áfengisgjaldi, tilkomu innviðagjalds á farþega skemmtiferðaskipa, álagt kílómetragjald og hækkun vörugjalda af ökutækjum. Þá eru ónefnd áform núverandi ríkisstjórnar að taka upp auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands og það nýjasta að hækka virðisaukaskattshlutfallið á baðlón. Það er ekki eitt, það er allt og þess ber að geta að ferðaþjónustan er alls ekki eina atvinnugrein landsins sem hefur átt við ramman reip að draga þegar kemur að breytingum stjórnvalda á álögum. Auknar álögur ekki svarið Það er hlutverk stjórnvalda að skapa fyrirtækjum fyrirsjáanlegt og hagkvæmt rekstrarumhverfi hverju sinni. Möguleikar og tækifæri atvinnugreina til verðmætasköpunar og frekari framþróunar ráðast að miklu leyti af því rekstrarumhverfi sem þær búa við. Staðreyndin er sú að óvissa er horn í síðu fyrirtækjareksturs, hún takmarkar fyrirsjáanleika og kemur í veg fyrir að fyrirtæki geti gert raunhæfar áætlanir til framtíðar. Það er langt í frá sjálfsagt að fólk leggi allt sitt undir og taki þá áhættu sem felst í því að stofna og reka fyrirtæki. Oft og tíðum virðist það því miður gleymast að verðmætasköpunin og þau framúrskarandi lífskjör sem hér fyrirfinnast verða ekki til í tómarúmi. Markmið stjórnvalda um hallalaus fjárlög eru góð og gild hins vegar liggur fyrir að þeim eru aðrar leiðir færar en að auka álögur. Það er ótækt að fyrirtækjarekendur þurfi á ári hverju að búa við óþarfa óvissu um hvaða skatt stjórnvöldum dettur í hug að leggja á eða hækka næst. Næg er sú ytri óvissa sem steðjar að og enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Það er eðlileg krafa fyrirtækja að óska eftir meiri fyrirsjáanleika frá stjórnvöldum, auknar álögur geta ekki alltaf verið svarið. Höfundur er hagfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnusta Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnusta Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Nú er framkomin fjármálaáætlun ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins fyrir árin 2027 til 2031 og þar kennir ýmissa grasa. Einfalt væri að skrifa grein um hin ýmsu áform sem í henni eru að finna og snerta ferðaþjónustu og aðrar atvinnugreinar með einum eða öðrum hætti. Aftur á móti er maður nú ansi hugsi yfir þeirri stöðu sem fyrirtæki landsins eru sett í, sí og æ. Þar sem framganga stjórnvalda virðist vera orðin einn veigamesti óvissuþátturinn í rekstri fyrirtækja á Íslandi. Í tilfelli ferðaþjónustunnar hafa á umliðnum árum breytingar á sköttum og gjöldum dunið á atvinnugreininni, ýmist beint og óbeint, flestar án eðlilegs fyrirvara. Má þar meðal annars nefna hækkanir á gistináttaskatti og áfengisgjaldi, tilkomu innviðagjalds á farþega skemmtiferðaskipa, álagt kílómetragjald og hækkun vörugjalda af ökutækjum. Þá eru ónefnd áform núverandi ríkisstjórnar að taka upp auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands og það nýjasta að hækka virðisaukaskattshlutfallið á baðlón. Það er ekki eitt, það er allt og þess ber að geta að ferðaþjónustan er alls ekki eina atvinnugrein landsins sem hefur átt við ramman reip að draga þegar kemur að breytingum stjórnvalda á álögum. Auknar álögur ekki svarið Það er hlutverk stjórnvalda að skapa fyrirtækjum fyrirsjáanlegt og hagkvæmt rekstrarumhverfi hverju sinni. Möguleikar og tækifæri atvinnugreina til verðmætasköpunar og frekari framþróunar ráðast að miklu leyti af því rekstrarumhverfi sem þær búa við. Staðreyndin er sú að óvissa er horn í síðu fyrirtækjareksturs, hún takmarkar fyrirsjáanleika og kemur í veg fyrir að fyrirtæki geti gert raunhæfar áætlanir til framtíðar. Það er langt í frá sjálfsagt að fólk leggi allt sitt undir og taki þá áhættu sem felst í því að stofna og reka fyrirtæki. Oft og tíðum virðist það því miður gleymast að verðmætasköpunin og þau framúrskarandi lífskjör sem hér fyrirfinnast verða ekki til í tómarúmi. Markmið stjórnvalda um hallalaus fjárlög eru góð og gild hins vegar liggur fyrir að þeim eru aðrar leiðir færar en að auka álögur. Það er ótækt að fyrirtækjarekendur þurfi á ári hverju að búa við óþarfa óvissu um hvaða skatt stjórnvöldum dettur í hug að leggja á eða hækka næst. Næg er sú ytri óvissa sem steðjar að og enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Það er eðlileg krafa fyrirtækja að óska eftir meiri fyrirsjáanleika frá stjórnvöldum, auknar álögur geta ekki alltaf verið svarið. Höfundur er hagfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar.
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun