Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. apríl 2026 16:16 Vísir/Diego Víkingur er kominn áfram í sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir 2-4 sigur á útivelli gegn Fram. Heimamenn í Úlfarsárdalnum jöfnuðu leikinn seint en gestirnir svöruðu ógnarsnöggt fyrir sig og sigldu sigrinum síðan örugglega í höfn. Leikurinn markaði upphaf tímabilsins hjá Fram en Víkingur hafði orðið meistari meistaranna um síðustu helgi. Eitthvað var um meiðsli hjá liðunum en bæði stilltu upp sínum sterkustu mögulega liðum og leikurinn varð hin fínasta skemmtun. Víkingur heldur áfram í næstu umferð, eftir að hafa dottið út í fyrstu umferð á síðasta ári, en Fram er úr leik. Kennie sprengdi upp rólega byrjun Eftir nokkuð rólega byrjun á leiknum tók Fram forystuna þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar. Markið krafðist ekki mikils uppspils. Einn langur bolti fram dugði til. Gunnar Vatnhamar gleymdi sér og sofnaði á verðinum þegar Kennie Chopart kom hlaupandi upp úr vörninni. Kyle McLagan fann fyrirliðann í lappir og Kennie kláraði færið vel framhjá Ingvari markmanni sem virtist renna aðeins til í úthlaupinu. Víkingar tóku við sér Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks voru Víkingar hættulegri aðilinn, þó Fram hafi ógnað nokkrum sinnum í skyndisóknum. Elías Már Ómarsson var óheppinn að jafna ekki metin en boltinn fór af honum í stöngina. Gylfi Þór Sigurðsson og Valdimar Þór Ingimundarson áttu líka ágætis færi en inn fór boltinn ekki. Sjálfsmark jafnaði metin og Stígur tók forystuna Loks þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum tókst Víkingi að jafna metin, þegar fyrirgjöf Gunnars Vatnhamars fór af Israel Garcia og þaðan í netið. Óheppni hjá Israel en fyllilega verðskuldað jöfnunarmark hjá Víkingi. Rétt fyrir hálfleik tók Víkingur forystuna þegar Stígur Diljan Þórðarson stakk sér inn fyrir vörnina, fékk háan bolta frá Oliver Ekroth og kláraði færið vel. Seinna mark Víkings var sérlega svekkjandi fyrir Fram því rétt áður hafði Freyr Sigurðsson klúðrað dauðafæri fyrir heimamenn. Fram jafnaði þvert gegn gangi leiksins Í seinni hálfleik var Víkingur töluvert líklegri til að bæta við forystuna en Fram var að jafna. Stígur Diljan Þórðarson, Elías Már Ómarsson og Erlingur Agnarsson fengu allir færi til að taka forystuna. Þvert gegn gangi leiksins tók Fram forystuna á 79. mínútu. Markið skráist sem sjálfsmark á Ingvar Jónsson en Kyle McLagan átti glæsilegan skalla í stöngina og boltinn skoppaði óheppilega í Ingvar og þaðan í netið. Víkingar svöruðu snöggt Staðan hélst hins vegar ekki lengi jöfn. Víkingur tók forystuna strax aftur á 80. mínútu og var síðan kominn 4-2 yfir aðeins mínútu síðar. Elías Már Ómarsson skoraði þriðja mark Víkings eftir vel útfærða hornspyrnu og stoðsendingu hjá Gunnari Vatnhamar. Fjórða markið skráist síðan sem sjálfsmark á markmanninn Viktor Frey Sigurðsson en Óskar Borgþórsson átti góðan sprett upp kantinn og setti boltann í markmanninn sem reyndi að verja með löppunum en skaut óvart í eigið net. Eftir þrjú mörk á þremur mínútum var Víkingur með 4-2 forystu. Leikurinn róaðist þá til muna, Fram sætti sig við tap og Víkingur sigldi sigrinum í höfn. Víkingar halda því áfram í 16 liða úrslit Mjólkurbikarsins. Mjólkurbikar karla Fram Víkingur Reykjavík Íslenski boltinn
Uppgjör: Grindavík 79-73 Valur | Tóku stórt skref í átt að undanúrslitum í spennutrylli Körfubolti
Uppgjör: Grindavík 79-73 Valur | Tóku stórt skref í átt að undanúrslitum í spennutrylli Körfubolti