Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2026 14:53 Aron Snær Ingason og félagar í Þrótti gerðu góða ferð til Vestmannaeyja. vísir/ernir Þróttur er kominn í sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir sigur á ÍBV í vítaspyrnukeppni, 2-4. Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 2-2.
Adam Árni Róbertsson skoraði bæði mörk Þróttara í leiknum og nýtti svo sína spyrnu í vítakeppninni. Þar reyndist Þórhallur Ísak Guðmundsson einnig mikilvægur en hann varði tvær spyrnur Eyjamanna. Adam Árni kom Þrótti yfir á 28. mínútu með skalla eftir hornspyrnu og gestirnir leiddu í hálfleik, 0-1. Á 48. mínútu jafnaði Sigurður Arnar Magnússon fyrir ÍBV eftir hornspyrnu en aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Adam Árni öðru sinni. Þegar sex mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma jafnaði Róbert Elís Hlynsson fyrir ÍBV, 2-2, með skallamarki og því þurfti að framlengja. Ekkert mark var skorað í framlengingunni og úrslit leiksins réðust þar af leiðandi í vítakeppni. Þórhallur byrjaði á því að verja frá Felix Erni Friðrikssyni og svo aftur frá Vítor Rocha Pisco, nýjum leikmanni ÍBV, í 3. umferð vítakeppninnar. Adam Árni kom Þrótti í 1-3 en Mathias Edeland skoraði úr næstu spyrnu heimamanna. Stefán Þórður Stefánsson fékk svo tækifæri til að tryggja gestunum úr Laugardalnum sæti í sextán liða úrslitunum. Hann skoraði úr sinni spyrnu og Þróttarar fögnuðu sigri. Upplýsingar um gang leiksins eru fengnar frá Fótbolta.net.
Mjólkurbikar karla ÍBV Þróttur Reykjavík Mest lesið Glódís stóð vaktina gegn Barcelona og allt opið í einvíginu Fótbolti Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Íslenski boltinn Þriðji sigur Liverpool í röð Enski boltinn Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Enski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti Lést í miðjum leik Fótbolti Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik Íslenski boltinn Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þór/KA 1-1 FH | Dramatískt jöfnunarmark og töpuð stig Valur - Grindavík/Njarðvík | Nýliðarnir heimsækja Hlíðarenda Draumabyrjun Þróttara en jafnt fyrir vestan Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ „Ég ætla að nýta það og sýna hvað í mér býr“ Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Ellefu mörk í Mosfellsbænum Uppgjör: Víkingur R. - Stjarnan 2-1 | Draumabyrjun Víkings Flest mörk í 67 ár Uppgjörið: Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Unglingalandsliðsmaður frá Bodö/Glimt til ÍBV Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn „Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ Besta-spá kvenna 2026: Baráttan um þann stóra Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Sló met Eiðs Smára Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ Sjá meira