New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Freyja Þórisdóttir skrifar 2. apríl 2026 09:21 Skúli Fjeldsted Baldursson er kennari á eftirlaunum en hann segist ekki mjög hrifinn af eldamennsku og því sé frábært að leyfa sér eina og eina pylsu svona af og til. Sigga Ella/New York Times Verðbólga hefur verið áberandi umfjöllunarefli fjölmiðla undanfarin misseri en nú hefur hún mögulega í fyrsta skipti verið skoðuð frá sjónarhóli pylsuunnenda. Þrátt fyrir að verð nái nýjum hæðum þá hörfa Íslendingar ekki frá þeim góða sið að fá sér eina með öllu.
Þjóðarréttur Íslendinga Þetta er meðal þess sem bandaríski miðillinn New York Times birti í frétt sinni í vikunni. Þar segir einnig að ef Íslendingar ættu þjóðarrétt þá væri það ein með öllu. „Ef Ísland ætti þjóðarrétt væri það pylsan. Hún er áþekk „dollarapítsusneiðinni“, þessu tákni um ódýran mat í New York-borg: heit, áreiðanleg og betri en hún þyrfti að vera,“ segir í fréttagreininni. Höfundur hennar fór vítt og breytt um höfuðborgarsvæðið en hún gerði sér meðal annars ferð á Pylsubarinn í Hafnarfirði. Þar tók helgarstarfsmaðurinn Gabriel Máni De Sousa að sér að afgreiða hana. Gabriel Máni De Sousa starfar á Pylsubarnum í Hafnarfirði en þar er hægt að panta pylsu með öllu og láta bæta við frönskum og bræddum osti.Sigga Ella/New York Times Gabriel tjáir höfundi að allir Íslendingar fái sér af og til pylsu, ríkir jafnt sem fátækir. Hann hófst í kjölfarið handa við að útbúa „eina með öllu“ sem af þeim hjá New York Times er lýst á þennan veg. „Bæði hráum og steiktum lauk er komið fyrir á milli pylsunnar og brauðsins og vænni gusu af tómatsósu, sætu brúnu sinnepi og remúlaði ofan á. Pylsurnar eru yfirleitt gerðar úr blöndu af þremur kjöttegundum, íslensku lambakjöti og nautakjöti ásamt smá af innfluttu svínakjöti, og þær hafa alvöru smell sem fylgt er eftir af safaríkum gusum sem myndu láta amerískar hliðstæður sínar skammast sín,“ en þessar ómótstæðilegu langsteikur sem höfundur lýsir hér eru ekki ónæmar fyrir verðbólgunni. Baldur Ingi Halldórsson er framkæmdastjóri Bæjarins Beztu Pylsur en fyrrverandi Bandaríkjaforseti Bill Clinton heimsótti standinn í miðbæ Reykjavíkur árið 2004 og pantaði sér pylsu með engu nema sinnepi.Sigga Ella/New York Times New York Times tók saman þau verð sem eru hvað algengust þegar kemur að pylsum hérlendis. Þar er niðurstaðan að þær séu að kosta um og yfir 750 krónur, sem sé lágt miðað við margt annað en að aðrir skyndibitar, svo sem kebab og pítsa, séu að kosta tvöfalt ef ekki þrefalt meira. Meira hækkað síðustu ár en þau 20 á undan En í kjölfar hækkandi neytendavísitölu hefur verð á pylsum orðið hærra og á einum frægasta pylsustað landsins, Bæjarins Beztu, hefur verðið hækkað meira á síðustu árum en á þeim tuttugu sem komu þar á undan. Þetta segir Baldur Ingi Halldórsson, framkvæmdastjóri pylsustaðsins, en staðurinn hefur selt pylsur í miðbæ Reykjavíkur síðan á fjórða áratug síðustu aldar og eru staðirnir nú fjórtán talsins. Erlendir ferðamenn sem koma til landsins ákveða líklegast margir hverjir að gera pylsustand Bæjarins Beztu í miðbæ Reykjavíkur að einum af áfangastöðum heimsóknarinnar.Sigga Ella/New York Times Árið 2022 var verðið 600 krónur en nú er það 880 krónur. Verðbólga hefur aukið hráefniskostnað og laun hafa sömuleiðis hækkað og því er mál með vexti að rekstrarkostnaður fyrirtækisins er hærri. „Við erum yfirleitt alltaf í fréttunum þegar við hækkum verðið,“ bætir hann við og grínast með að hafa gert það að markmiði sínu að reyna að halda sig úr fréttafyrirsögnum. Fá ekki nóg Jakob Hjalmar Konráðsson og Krista María Finnbjörnsdóttir, stoltir pylsuunnendur, ræddu við höfund greinarinnar hjá New York Times um dálæti sitt á pylsum. Þá segist Jakob hafa gengið svo langt að taka með sér „vakúm“ pakkaðar pylsur þegar hann bjó erlendis, í Noregi og Svíþjóð. Þau segja einnig frá því að móðir Kristu hafi sent henni pylsur þegar hún var í námi í Bretlandi. Jakob Hjálmar Konráðsson og Krista María Finnbjörnsdóttir deila ást sinni á pylsum og þá sérstaklega þeim sem fást á pylsustandi Bæjarins Beztu.Sigga Ella/New York Times „Þær eru mjög ávanabindandi,“ sagði Krista María en undir það tekur Jón og segir einfaldlega ekkert jafnast á við pylsur. Þau borða nokkrar pylsur frá Bæjarins Beztu í hverri viku. Parið fór að rifja upp hversu lágt verðið var í æsku þeirra eða um 350 krónur fyrir pylsu og gos, „það er mjög klassískt að fá sér pylsu og kvarta undan verðinu,“ sagði Jakob þá í gríni.
Matarást Menning Bandaríkin Reykjavík Hafnarfjörður Mest lesið Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Veður Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð Innlent Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Erlent „Ég táraðist í flugvélinni“ Innlent Vilja fá valdið aftur Innlent New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Innlent Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Erlent „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Erlent Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Sjá meira