Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Kjartan Kjartansson skrifar 1. apríl 2026 10:32 Skúli Tómas Gunnlaugsson hefur starfað á Landspítalanum frá því að hann var sakaður um alvarleg mistök í starfi á Heilbirgðisstofnun Suðurnesja. Vísir Börn konu sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja saka Skúla Tómas Gunnlaugsson lækni um að hafa hneppt hana í „lyfjafjötra“. Sérfræðingar hafi úrskurðað að konan hafi fengið lífslokameðferð sem ekki hafi verið forsendur fyrir.
Héraðssaksóknari ákærði í fyrradag Skúla Tómas fyrir manndráp af ásetningi vegna andláts Dönu Jóhannsdóttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Rannsókn á andlátum fimm annarra sjúklinga var felld niður. Börn Dönu, sem kvörtuðu til landlæknis undan meðferðinni sem hún fékk, segja í yfirlýsingu sem þau sendu fjölmiðlum í morgun að dánarorsök hennar hafi verið fjölkerfabilun sem hafi verið „fyrirsjáanleg afleiðing af því að hneppa manneskju í lyfjafjötra“. Þeir hafi valdið því að hún gæti ekki borið sig eftir næringu og vökva. „Þvættingur“ að málið sé flókið Kalla þau ummæli Skúla Tómasar um að erfitt hafi verið fyrir ákæruvaldið að átta sig á málinu vegna þess að það snerist um flókin læknisfræðileg atriði „þvætting“. Vísa þau til niðurstaðna dómkvaddra matsmanna við rannsóknina um að ekki hafi verið forsendur til að Dana hlyti lífslokameðferð á heilbrigðisstofnuninni heldur hefði hún átt að fá líknarmeðferð. Verklagi hefði ekki verið fylgt um meðferðina. Lyfjameðferðin sem Dana fékk hefði ekki verið eðlileg með tillit til ástands hennar og sjúkdómsgreiningar. Óháður sérfræðingur sem var fenginn til að leggja mat á málið þegar landlæknir skoðaði það hafi einnig talið að ekki hefðu verið forsendur fyrir lífslokameðferð. „Tveir dómkvaddir matsmenn komust einnig að þeirri niðurstöðu að sú meðferð sem hún fékk í síðustu legu sinni á HSS hafi borið einkenni lífslokameðferðar sem ekki voru forsendur fyrir. Að kröfu Skúla voru þeir látnir endurskoða matsgerðina og komust þá aftur að sömu niðurstöðu,“ segir í yfirlýsingunni sem þau Beggi Dan Gunnarsson, Borghildur B. Hauksdóttir, Eva Hauksdóttir og Hugljúf Dan Jensen skrifa undir.
Landspítalinn Heilbrigðismál Lögreglumál Dómsmál Læknamistök á HSS Tengdar fréttir Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir hefur verið ákærður fyrir manndráp af ásetningi í tilfelli eins sjúklings í hans umsjá. Lögregla hafði andlát sex sjúklinga til skoðunar og felldi rannsókn fimm þeirra niður. 31. mars 2026 11:29 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira
Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir hefur verið ákærður fyrir manndráp af ásetningi í tilfelli eins sjúklings í hans umsjá. Lögregla hafði andlát sex sjúklinga til skoðunar og felldi rannsókn fimm þeirra niður. 31. mars 2026 11:29