„Dómarinn þarf að vera 100% viss um að þetta sé viljandi“ Smári Jökull Jónsson skrifar 31. mars 2026 21:26 Jamil Abiad er þjálfari Valskvenna. Vísir/Anton Brink Jamil Abiad þjálfari Vals var svekktur með úrslitin í fyrsta leik Vals og Grindavíkur í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta. Stór ákvörðun dómara undir lokin hafði mikil áhrif á úrslitin. „
Fyrsti hálfleikur var hægur hjá báðum liðum og leikmenn voru að reyna að finna taktinn. Sóknarlega voru bæði lið í brasi en í vörninni voru bæði liðin að leggja sig vel fram,“ sagði Jamil Abiad þjálfari Vals eftir 59-55 tap Valskvenna gegn Grindavík í Bónus-deildinni í kvöld. Afar lítið var skorað í leiknum og staðan í hálfleik var 23-20 fyrir Grindavík, skor sem oftar sést að loknum einum leikhluta en ekki tveimur. „Í seinni hálfleik komum við okkur í stöðu til vinna leikinn, komumst í 51-47 á tímabili en gerðum of mörg mistök til að klára leikinn. Ásta [Júlía Grímsdóttir] fékk villu undir lokin sem hún var óheppin með. Við þurftum hana undir lokin því hún hafði verið frábær og tekið einhver tuttugu fráköst,“ bætti Jamil við en um var að ræða fimmtu villuna á Ástu Júlíu sem þar með þurfti að ljúka leik. Sóknarlega gekk Val bölvanlega oft á tíðum að ná stigum á töfluna. „Við fengum opin skot sem duttu ekki niður en við þurfum að passa betur upp á boltann og sjá til þess að sóknarleikurinn gangi betur.“ Jamil talaði um fyrir leik að frákastabaráttan myndi skipta máli og þar stóðu Valskonur sig vel. Þær nýttu hins vegar ekki nægilega vel að fá tvo eða þrjá möguleika í hverri sókn. „Í hvert skipti sem þú nærð sóknarfrákasti þá ertu að koma þér í stöðu að bæta við stigum en þetta datt ekki í dag. Ég hef ekki skoðað hvað við skoruðum margar þriggja stiga körfur en við vorum að fá opin skot, ég er ánægður með það en í fyrri hálfleik var sóknin okkar mjög stöð. Við þurfum að fá meiri hreyfingu og koma fleiri leikmönnum inn í leikinn.“ „Ákvörðun sem breytti leiknum“ Undir lokin varð stórt atvik þegar Alyssa Cerino, leikmaður Vals, fékk óíþróttamannslega villu. Kristinn Óskarsson dómari dæmdi villuna þegar Cerino var á leið af velli eftir að leikhlé hafði verið tekið og sagði hana hafa labbað utan í leikmann Grindavíkur á leið sinni af velli. „Ég sá ekki hvað gerðist. Mér var sagt að hún hafi verið á leið á bekkinn og ég veit ekki hvort hinn leikmaðurinn var fyrir framan hana eða hvað, þeir rákust á hvor aðra og hvort það var viljandða ekki veit ég ekki.“ „Þetta var óheppilegt, þær fengu tvö víti og boltann og leikurinn snerist þarna.“ Ákvörðun Kristins dómara var stór og hafði mikil áhrif á leikinn. „Fyrir mér þá þarf dómarinn að vera 100% viss um að þetta sé viljandi, þær eru báðar að hlaupa í átt að bekknum. Þetta er ákvörðun sem breytti leiknum. Við fáum ekki boltann, það munar einni körfu á liðunum. Ég þarf að skoða þetta atvik aftur því ég veit ekki hvað gerðist. Við þurfum að vera betri, vera klókari og vera með betri stjórn á okkar tilfinningum.“ Þóranna með í næsta leik Liðin mætast næst í Grindavík á laugardag en þrjá sigra þarf í einvíginu til að komast áfram í undanúrslit. „Við höfum spilað betur í vetur á útivelli þannig að þetta er enginn heimsendir. Þetta er bara fyrsti leikurinn og þú þarft að vinna þrjá leiki. Við þurfum einfaldlega að gera betur, við spiluðum ekki sérlega vel í dag en komum okkur samt í stöðu til að vinna en töpuðum með fjórum stigum. Við getum ekki svekkt okkur of mikið. Þurfum að ná góðri endurheimt, laga mistökin og klára betur í sókninni,“ sagði Jamil að lokum. Þá sagði hann að Þóranna Kika Hodge-Carr yrði með í næsta leik en landsliðskonan öfluga var ekki með Val í kvöld vegna meiðsla.
Bónus-deild kvenna UMF Grindavík Valur Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Fleiri fréttir Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark Sjá meira