Danir að þvælast fyrir viðræðum HSÍ við Snorra og Arnór? „Styttist í fréttir“ Aron Guðmundsson skrifar 1. apríl 2026 07:02 Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason hafa myndað gott teymi með íslenska landsliðinu en nú eru á sveimi sögusagnir um að landsliðsþjálfari Danmerkur vilji sundra þeim. Vísir/Samsett Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Danmerkur í handbolta, er sagður vilja fá Arnór Atlason, aðstoðarþjálfara íslenska karlalandsliðsins, sem sína hægri hönd hjá danska landsliðinu. Formaður HSÍ segir viðræður við bæði Arnór sem og Snorra Stein Guðjónsson, landsliðsþjálfara í fullum gangi. Það styttist í tíðindi.
Sagt var frá því á vef Handkastsins í gær að Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari danska karlalandsliðsins í handbolta hefði áhuga á því að fá Arnór Atlason, aðstoðarlandsliðsþjálfara íslenska karlalandsliðs í handbolta, sem aðstoðarþjálfara sinn. Henrik Kronborg, sem hefur verið hægri hönd Jacobsen með danska landsliðið, hefur ákveðið að hætta sem aðstoðarþjálfari danska landsliðsins og því eru Danir að leita að nýjum aðstoðarlandsliðsþjálfara. Svo vill til að núverandi samningur Arnórs Atlasonar við HSÍ er að renna sitt skeið og eru bæði hann og Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í viðræðum við HSÍ um nýjan samning. Heimildir Handkastsins herma að viðræður HSÍ við Snorra Stein séu að dragast á langinn vegna þess að Snorri hefur lagt á það áherslu á að halda Arnóri Atlasyni áfram sem aðstoðarþjálfara liðsins. Samhliða starfinu með íslenska landsliðinu er Arnór þjálfari danska liðsins TTH Holstebro og þekkir vel til í Danmörku. „Viljum bæði Snorra og Arnór“ Jón Halldórsson, formaður HSÍ, segir í samtali við Vísi að samningaviðræður séu í fullum gangi. „Við erum á kafi á samningaviðræðum,“ segir Jón í samtali við Vísi. „Við viljum bæði Snorra og Arnór. Það styttist í fréttir af þessu.“ Jón Halldórsson er formaður HSÍVísir/Sigurjón Formaðurinn er mjög bjartsýnn á að halda þeim báðum. „Það er bara skýrt takmark, það er það sem við viljum.“ Aðspurður hvort viðræðurnar væru að ganga samkvæmt tímaáætlun sambandsins sagði Jón svo vera. „Við erum bara í góðu samtali við umboðsmenn þeirra. Þetta er allt á réttri leið.“ Með kandídata í huga Í samtali við danska miðilinn TV 2 segist Nikolaj Jacobsen vera með nokkur nöfn í huga sem næsta aðstoðarþjálfara danska landsliðsins. Hann tekur mikinn þátt í ráðningarferlinu hjá danska handknattleikssambandinu. „Fyrir mitt leiti er það mikilvægt að næsti aðstoðarlandsliðsþjálfari sé einhver sem ég næ persónulega að tengja vel við sjálfur. Ég er með nokkra mögulega arftaka Kronborg í huga. Nú er bara spurningin hvort við fáum einhvern til að taka stökkið til okkar,“ sagði Jacobsen við TV 2.
Landslið karla í handbolta HSÍ Danski handboltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira