„Við krossum bara fingur“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 31. mars 2026 12:19 Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar. vísir Búast má við umhleypingarsömu veðri í dag og á morgun en síðan mun rætast ágætlega úr því yfir páskahelgina. Gular veðurviðvaranir tóku gildi á Austurlandi klukkan tíu í dag og þá hafa viðbragðsaðilar haft í mörgu að snúast í Þrengslum og á Hellisheiðinni sem var lokað í tvígang.
Hellisheiðinni var lokað snemma í morgun eftir að eldur kom upp í snjóruðningstæki en hún var var opnuð aftur á sjöunda tímanum í morgun. Hellisheiðinni var lokað í annað sinn rúmlega klukkutíma síðar þegar umferðaróhapp varð á einum vegarhelmingi og þó nokkrir bílar festust á hinum helmingnum. Þrengslum var einnig lokað vegna ökutækis sem þveraði veginn. Fólk eigi að fylgjast vel með veðri og færð Þetta staðfestir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu. Lögregla og slökkvilið var kölluð til í morgun og björgunarsveitarfólk aðstoðaði við að losa bíla. „Nei, í morgun var svona kóf en þetta virðist allt vera að létta til og er allt að breytast til hins betra. Þetta er náttúrulega slæmt þegar það lokar á versta tíma, þegar fólk er að fara til og frá vinnu. Það er náttúrulega bagalegt en svona er þetta bara. Þetta er það sem við höfum þurft að vinna með síðustu daga og vikur.“ Það á að vera erfið færð á köflum á næstu dögum. Eru einhver skilaboð sem þú vilt gefa til fólks? „Já, fara varlega og fylgjast vel með veðri og færð. Það er það sem menn eiga að gera. Það þarf að skipuleggja ferðir samkvæmt því.“ Gott að fara snemma af stað á morgun Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, segir að reikna megi með umhleypingasömu veðri víða í dag og á morgun. „Það fór svo mikil lausamjöll af stað eftir snjókomuna í nótt og það bráðnar nú í henni á láglendi þannig að það þarf ekki að hafa áhyggjur af því þar, víðast hvar. Það hefur verið að hvessa í kjölfar þessarar lægðar sem fór yfir landið með norðvestan- og vestanátt. Þá er dálítill skafrenningur. Þetta er tæpt til dæmis á Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði upp á vindinn að gera. Það munar svo miklu þegar þú ert kominn í þrettán til fimmtán metra á sekúndu með skafrenningi. Þetta lítur ekkert voðalega vel út með færðina til dæmis yfir Mývants- og Mördalsöræfi í þessum hvassa vindi. Eins með Fjarðarheiðina og Vatnsskarð eystra fyrir austan Vopnafjarðarheiði. Ágætis veður er til ferðalags yfir daginn á morgun. Er það því fyrr því betra á morgun ef fólk ætlar úr bænum eða fer á milli landshluta? „Já, fólk ætti að reyna að taka daginn snemma, því síðan er versnandi veður eftir að þessum þjónustutíma lýkur og þá getur aftur farið að skafa í skafla og þá er líka hríðarveður á fjallvegum, sérstaklega fyrir vestan. Það á þá við seint annað kvöld og fram eftir skírdagsmorni. Ekki veður sem minnir á sumaryl og páskaliljur Hann segir að það muni rætast ágætlega úr veðrinu um helgina þótt það verði enn vetrarveður. „Það kólnar aðeins hjá okkur. Það verður frost á nóttunni og hiti um eða yfir frostmarki á daginn. Það er ekki að sjá í spánum nein veruleg úrkomusvæði í kringum okkur. Það er óvissa með páskadag á Norðurlandi en heilt yfir verða þessar lægðir sem hafa verið að herja á okkur undanfarið og gera áfram næstu tvo sólahringa verða að mestu úr sögunni.“ Svo það er ólíklegt að þetta verði gulir páskar í ár með tilheyrandi veðurviðvörunum? „Já, gulu veðurviðarirnar. það er ekki að sjá. Næsti hvellur sem má sjá í fjarskanum er á þriðjudaginn eftir annan í páskum og við krossum bara fingur,“ segir Einar og kímir og bætir við: „Þetta er bara ágætis veður. Við getum sagt að þetta verði enn vetrarveður. Það er ekki. Þetta verða ekki páskar sem minna mann á sólarhita og páskaliljur. Það er frekar að það verði snjór og næturkuldi. Sólin ætti að ylja á daginn ef þessar spár ganga eftir um páskana.“
Veður Páskar Mest lesið Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða Innlent Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Innlent „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Innlent „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Innlent Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Innlent Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Erlent Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Erlent Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Segir magnað að fá að sjá verk Bjarkar á Listahátíð „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Takmarkað aðgengi að P2-bílastæðum vegna malbikunar Tjá sig ekki um málið Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Ósátt með áform meirihlutans Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn á Kársnesi Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Sjá meira