Voru send í skólasund eftir slysið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 30. mars 2026 20:16 Ásdís Thelma Fanndal Torfadóttir og Kristbjörg Hildur Gunnarsdóttir eiga báðar dætur í Urriðaholtsskóla. Vísir/Anton Brink Neyðarlínan segist ekki hafa fengið fullnægjandi upplýsingar þegar bíll gjöreyðilagðist eftir aftanákeyrslu á hópferðabíl fullum af börnum fyrir tæpum tveimur vikum. Sjúkrabíll hefði verið sendur samstundis á vettvang hefðu þær borist.
Hún lét frekar lítið yfir sér tilkynning lögreglu þann 17. mars þar sem kom fram að eitthvað hefði verið um meiðsl þegar ekið var á skólarútu. Í rútunni var hins vegar 21 barn á ellefta og tólfta ári úr Urriðaholtsskóla á leið í skólasund á Álftanesi. Skólastjóri sendi foreldrum tölvupóst nokkrum tímum eftir slysið þar sem kom fram að bílstjóri hefði metið sem svo að enginn væri meiddur, hann hefði upplýst 112 um það og því hafi hvorki lögregla né sjúkrabíll verið kölluð til. Börnin voru í staðinn send fótgangandi í sundtímann. Börnin á gangi eftir slysið.Aðsend „Þau fóru að okkar bestu getu ofan í og svo aftur upp í og þá kom rúta að sækja þau,“ segir Ásdís Thelma Fanndal Torfadóttir sem á dóttur sem var um borð í rútuinni. „Ég get ímyndað mér að þau hafi sagt við bílstjórann, heyrðu við lentum hérna í bílslysi í rútunni og nú erum við mætt og þau voru send í heita pottinn,“ segir Kristbjörg Hildur Gunnarsdóttir en dóttir hennar var einnig í rútunni. Brotin tönn og teinar Það var ekki fyrr en börnin komu til baka í skólann sem skólahjúkrunarfræðingur skoðaði þau og hafði samband við foreldra, þá um tveimur tímum eftir slysið. Í ljós hafði komið að því var fjarri að börnin væru öll ómeidd. „Það var eitt barn sem meiddist í munni, teinarnir brotnuðu og vírinn stakkst í kinn. Það voru margir með einhverjar kúrur og við höfum heyrt að einn hafi fengið heilahristing,“ segir Ásdís. Kristbjörg bætir við að tönn barns hafi brotnað. „Hann bremsaði þannig að þau fá hnykk og til dæmis dóttir mín fer með höfuðið í rúðuna þannig að þau eru einhver með kúlu,“ segir Kristbjörg. „Mér skilst að þær hafi verið tvær uppi í skóla sem tóku öll börn sem lentu í þessu og fundu til og skoðuðu þau og hringdu í foreldra,“ segir Ásdís. Skólahjúkrunarfræðingurinn hafi hvatt þær til að fara með börnin í frekari skoðun. „Hún dró ekki úr þessu fannst mér, hún sagði við mig að þetta var verulegt högg,“ segir Kristbjörg. Þær segja að lögregla hafi svo verið kölluð í skólann til að taka skýrslu af börnunum. Þær eru ósáttar við framgöngu skólayfirvalda, Garðabæjar og rútufyrirtækisins í málinu. „Það hafa ekki verið nein svör, það hefur ekkert komið um að þau harmi þetta atvik og ætli að fara á fullt í að skoða þetta með bæjaryfirvöldum, rútufyrirtækinu og skoða verkferla. Þau hafa ekki sýnt samúð með áfallinu sem þetta er því krakkarnir eru í sjokki eftir þetta,“ segir Kristbjörg. Bjóða foreldrum á fund Í kjölfar umfjöllunar um slysið sendi Linda Udengård, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs Garðabæjar, frá sér yfirlýsingu þar sem atvikið er harmað. „Um leið og tilkynning um atvikið barst sveitarfélaginu hófst samtal við rútufyrirtækið en upplýsingagjöf til foreldra var þó greinilega ekki nægjanleg þykir okkur það miður. Málið vakti skiljanlega upp sterk viðbrögð og er það tekið alvarlega,“ segir í tilkynningunni. Eftir bílslysið hafi skólastjóri haft samband við foreldra símleiðis og sendur tölvupóstur á foreldra allra barna í þeim árgöngum sem um ræðir. Þá hafi forsvarsmenn skólans einnig haft strax samband við lögreglu sem hefur í framhaldinu rætt við foreldra og rútufyrirtækið. „Verklag er til staðar þegar upp koma atvik sem þessi og ljóst er að við munum af varkárni endurskoða þær. Sömuleiðis hefur viðkomandi rútufyrirtæki endurskoðað sína verkferla. Við teljum mikilvægt að draga lærdóm af þessu atviki og skoða hvar úrbóta er þörf,“ segir í tilkynningunni. „Öryggi og velferð nemenda og barna er ávallt í forgrunni og verður atvikið sem og viðbrögðin og samskiptin í kjölfarið skoðuð í þaula með það að markmiði að koma í veg fyrir að slíkt komi fyrir aftur. Ábendingar foreldra sem fram hafa komið og gagnrýni á fullan rétt á sér og mun Garðabær í framhaldinu bjóða foreldrum á fund til að fara yfir málin.“ Rútubílstjórinn hringdi ekki í Neyðarlínuna „Í þessu tilviki kemur eitt símtal frá bílstjóra fólksbílsins en upplýsingarnar sem við fáum úr því er að þetta er minniháttar og svo er enginn slasaður og bíllinn sé óökufær. Þá er eðlilegt hjá okkur að við gefum yfir til lögreglu sem leysir síðan úr málinu,“ segir Ármann Gestsson, varðstjóri hjá Neyðarlínunni. Hins vegar hafi ekki komið fram í símtalinu að einhver væri slasaður né að börn væru um borð í rútunni. Ekki séu neinar upplýsingar hjá Neyðarlínunni um að bílstjóri rútunnar hafi haft samband. „Mér finnst þetta frekar óeðlileg vinnubrögð ef ég segi sjálfur frá,“ segir Ármann.
Samgönguslys Garðabær Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira