Körfubolti

Jóhanna stígur til hliðar eftir fimm­tán ár sem for­maður

Aron Guðmundsson skrifar
Jóhanna á stóran þátt í uppgangi körfuboltans í Þorlákshöfn
Jóhanna á stóran þátt í uppgangi körfuboltans í Þorlákshöfn Mynd: Þór Þorlákshöfn

Jóhanna Margrét Hjartardóttir hefur ákveðið að stíga til hliðar sem formaður körfuknattleiksdeildar Þórs Þorlákshafnar eftir rúmlega fimmtán ár í embætti.

Jóhanna greinir frá ákvörðun sinni í færslu sem birtist á samfélagsmiðlareikningi Þórs Þorlákshafnar fyrr í dag. Þáttur hennar í uppgangi körfuboltans í Þorlákshöfn er mikill og hefur bærinn bæði átt lið í efstu deild karla og kvenna. 

Í formannstíð Jóhönnu vann Þór Þorlákshöfn einnig sinn fyrsta og eina Íslandsmeistaratitil til þessa í sögunni árið 2021 í karlaflokki.. 

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar Þórs Þorlákshafnar fer fram annað kvöld og verður Jóhanna þar ekki í framboði til formanns. 

„Þessi ár hafa verið mér ómetanleg,“ segir Jóhanna. „Bæði lærdómsrík og afar ánægjuleg. Ég hef haft þann heiður að starfa með frábæru fólki; stjórnarfólki, sjálfboðaliðum og þjálfurum sem er tilbúið að bretta upp ermar og láta til sín taka í fjölbreyttum verkefnum. Starfið hefur verið fullt af eftirminnilegum stundum. Eins og gengur hafa komið bæði áskoranir og gleðistundir, en einmitt sú blanda hefur gert þetta ferðalag svo lærdómsríkt og gefandi. Það hefur verið sannur heiður að taka þátt í uppbyggingunni hjá okkur Þórsurum og fylgjast með starfinu vaxa og dafna með samstilltu átaki okkar allra.“

Þá hafi verið sérstaklega dýrmætt að kynnast öllum þeim sem brenna fyrir körfuboltahreyfinguna á landsvísu.

„Ég horfi björtum augum til framtíðar og hlakka til að sjá starfið halda áfram að þróast og blómstra í höndum nýrra leiðtoga og öflugra sjálfboðaliða. Ég mun áfram styðja starfið af heilum hug og fylgjast með af stolti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×