Hvernig á ekki að nota gervigreind! Karl Thoroddsen skrifar 30. mars 2026 08:30 Fyrir um það bil 100 árum hóf rafmagnið innreið sína á Íslandi. Rafmagnið breytti miklu fyrir venjuleg heimili, og fylgdi tækninni meiri lýsing, meira hreinlæti og möguleiki á notkun á nýrra tækja. Innleiðingunni fylgdi þó áhætta og þurfti að fræða notendur um hættur rafmagnsins. Til dæmis var bent á að hvorki væri sniðugt að stinga fingri í innstungu eða að fara í bað með útvarp á baðkarsbrúninni. Í dag erum við að upplifa nýja tæknibyltingu sem mun mögulega hafa meiri áhrif en rafmagnið gerði á sínum tíma. Gervigreindin er komin til að vera, og eins og rafmagninu þá fylgja henni bæði kostir og hættur. Fyrirspurnir gleymast ekki Gervigreindin er í stöðugt að afla sér nýrrar þekkingar, ferli sem er kallað þjálfun. Hún notar fyrirspurnir frá þér til að læra af, og með þeim upplýsingum er ný útgáfa af gervigreind búin til. Ef þú notar gervigreind í skýinu til að greina upplýsingar um viðskiptavin þá getur annar notandi í öðru landi fræðilega spurt gervigreindina um þær upplýsingar einhverjum vikum seinna. Mörg dæmi eru um gervigreindarfyrirtæki sem framkvæma þannig þjálfun án leyfis. Eru gögnin örugg? Gervigreind er einstaklega góð í að greina og umrita texta. Algengt er að fyrirtæki og stofnanir visti gögn í skýi eða hlaði gagnasöfnum í gervigreind svo hún geti hjálpað til með greiningu og umritun. Ef fyrirtæki eða stofnun í Evrópu sendir gögn til bandarískra eða kínverskra fyrirtækja þá geta stjórnvöld þar nálgast gögnin. Bæði löndin hafa sérstök lagaúrræði tengd öryggislögum til að lesa upplýsingarnar. Þetta er alvarlegt vegna þess að öll stærstu gervigreindarfyrirtækin eru frá þeim löndum. Ef til dæmis fyrirtæki í orkugeiranum vinnur með upplýsingar um nýjar framkvæmdir á Grænlandi hjá Microsoft þá eru þær upplýsingar opnar fyrir stjórnvöldum í Bandaríkjunum með dómsúrskurði. Jafnvel þótt gögnin og fyrirspurnirnar séu geymd í Evrópu eru þau aðgengileg stjórnvöldum í Bandaríkjunum og Kína ef hýsingaraðilarnir eru lögaðilar í þeim löndum. Til viðbótar er rétt að geta þess að strangar reglur eru um meðferð viðkvæmra gagna hjá ESB, reglur sem Ísland hefur gengist undir. Fylgja verður GDPR persónuverndarlöggjöfinni til hins ítrasta ella er hætta á verulegum fjársektum. Óráð og gamlar upplýsingar Þótt gervigreind virki stundum eins og alvitur vera þá er hún það ekki. Í grunninn er gervigreindin líkindavél og þegar hún fær spurningu skilar hún því svari sem líklegast er rétt. Í flestum tilfellum reynist það vera hið rétta svar en oft verður henni illa á messunni. Ef þú spyrð um staðreynd sem gervigreindin hefur ekki fengið næga þjálfun í þá er líklegt að þú fáir rangt svar án þess að hún (eða þú) geri sér grein fyrir því. Nýlega hafa komið upp mjög alvarleg mál þar sem svör gervigreindar hafa valdið gríðarlegum skaða með því að skila niðurstöðum sem áttu sér enga stoð í raunveruleikanum. Flestöll gervigreind hefur tímatakmörk á þekkingu sinni. Gervigreind getur hafa verið þjálfuð fyrir einu ári og þá veit hún ekkert um staðreyndir eftir þann tíma - en mun ekki endilega segja frá því heldur bara skálda staðreyndir á sannfærandi hátt. Hvernig á þá að nota gervigreind? Ef þú vinnur með viðkvæm gögn eða ert að mata gervigreind á gögnum sem eru persónugreinanleg þá er eina lausnin að nota gervigreind sem keyrir innan fyrirtækisins eða hjá aðila sem ekki er hægt að sækja gögn frá. Skiptir þar öllu máli frá hvaða landi þjónustuaðilinn er, en ekki að gögnin séu hýst í Evrópu. Ef gervigreindin er hýst hjá ytri aðila þá þarf einnig að vera öruggt að ekki sé verið að þjálfa nýjar útgáfur með þínum gögnum og fyrirspurnum. Til að minnka líkur á ranghugmyndum í niðurstöðum er nauðsynlegt að yfirfara svör gervigreindarinnar og sérstaklega tilvísanir. Ágæt regla er að taka svör frá einni gervigreind og setja þau í aðra og biðja um að svarið sé yfirfarið. Gervigreind er að valda byltingu á öllum sviðum samfélagsins. Með einungis nokkrum varúðarráðstöfunum er hægt að tryggja öryggi og nýta byltinguna til góðs í stað þess að stinga fingrunum í innstunguna! Höfundur er sérfræðingur í gerð hugbúnaðarkerfa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar