Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Lovísa Arnardóttir skrifar 26. mars 2026 15:40 Ingunn hefur starfað við innri endurskoðun um árabil. Aðsend Borgarráð samþykkti í dag ráðningu Ingunnar Ólafsdóttur sem innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar. Í tilkynningu kemur fram að Ingunn hafi verið starfandi innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar í tæp tvö ár en þar áður var hún fagstjóri innri endurskoðunar og staðgengill innri endurskoðanda frá árinu 2021.
Áður var hún innri endurskoðandi Háskóla Íslands um sex ára skeið og byggði þar upp innri endurskoðun háskólans og tengdra stofnana frá grunni, mótaði verklag, kom að stofnun endurskoðunarnefndar og vann í nánu samstarfi við rektor, æðstu stjórnendur og Ríkisendurskoðun. Þar áður var hún meðal annars verkefnastjóri í áhættuþjónustu Deloitte. Ingunn er fagvottaður innri endurskoðandi (CIA) og er auk þess með vottun í áhættustjórnun (CRMA). Hún er með B.A. gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, M.A. gráðu í evrópskum stjórnsýslufræðum frá KU Leuven í Belgíu og M.A. gráðu í alþjóðasamskiptum frá University of Kent í Englandi. Starf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar var auglýst 12. febrúar og bárust fimm umsóknir um stöðuna. Í samræmi við reglur um ráðningar borgarráðs í æðstu stjórnunarstöður var skipuð ráðgefandi hæfnisnefnd. Í tilkynningu segir að í lokaskýrslu nefndarinnar segi að Ingunn sé best til þess fallin að gegna starfi innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar með farsælum hætti. Menntun hennar og fagvottanir endurspegli traustan fræðilegan grunn og sérhæfða þekkingu sem nýtist sérstaklega vel hjá stórri samstæðu á borð við Reykjavíkurborg. „Hún uppfyllir þær menntunar- og hæfniskröfur sem gerðar voru til starfsins og hefur jafnframt sýnt í fyrri störfum sínum og í núverandi starfi hjá Reykjavíkurborg að hún hefur burði til að leiða innri endurskoðun og ráðgjöf af festu, fagmennsku og sjálfstæði.“
Reykjavík Vistaskipti Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira