„Stelpurnar skipta okkur alveg jafn miklu máli og strákarnir“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. mars 2026 10:02 Blaðamannafundur verður loksins haldinn fyrir kvennalandsliðið í dag eins og venjan hefur verið fyrir karlalandsliðið. Marijan Murat/picture alliance via Getty Images Jón Halldórsson, formaður HSÍ, tekur ekki undir þær fullyrðingar að sambandið mismuni kynjum í kynningarefni og auglýsingum fyrir landsleiki. Hann segir gagnrýnina verða tekna til skoðunar en stefnuna alltaf hafa verið að gera hlutina eins hjá báðum kynjum.
Ásthildur Bertha Bjarkadóttir, leikmaður í Olís deild kvenna í handbolta með liði ÍR, varpaði ljósi á misræmi í vinnubrögðum hjá sambandinu á samfélagsmiðlinum TikTok. Af myndskeiði Ásthildar mátti greina að leikir karlalandsliðsins voru mun meira auglýstir á samfélagsmiðlareikningum HSÍ heldur en leikur kvennalandsliðsins. Jón Halldórsson, formaður HSÍ, ræddi málið við Vísi í gær. „Við skulum hafa það á kristaltæru að við sem stöndum þarna í stafni, við viljum að hlutirnir séu gerðir eins fyrir bæði kynin og höfum lagt okkur fram við það. Við fengum þessa gagnrýni og höfum verið að safna gögnum, svo við sjáum svart á hvítu hvernig þetta lítur út hjá okkur. Þetta snerist um það sem kom fram á samfélagsmiðlum en við erum að auglýsa leiki á öðrum stöðum líka. En við skoðum að sjálfsögðu allt svona, af því við viljum og ætlum að gera vel. Stelpurnar okkar skipta okkur alveg gríðarlega miklu máli, alveg jafn miklu máli og strákarnir.“ Jón Halldórsson, formaður HSÍVísir/Sigurjón Blaðamannafundur eða tölvupóstur? Það er nú ekki hægt að segja að þið hafið lagt ykkur fram við að hafa þetta alveg eins, þegar leikmannahópur er tilkynntur með tölvupósti kvenna megin og blaðamannafundi í höfuðstöðvum Arion Banka karla megin. „Við erum með blaðamannafund [í dag] þar sem við kynnum landslið kvenna með nákvæmlega sama hætti og karlalandsliðið. Við erum í ákveðnu ferli að þróa okkar starf. Við ætlum að gera hlutina eins en það bara tekur tíma. Þið munuð sjá það strax [í dag], sams konar blaðamannafund og var haldinn fyrir strákana. Svo munuð þið sjá núna 12. apríl, þegar þær eru að keppa gríðarmikilvægan leik á móti Portúgal, þið munuð sjá sams konar umgjörð, allt eins í þeim leik eins og tengdist hjá strákunum.“ Ekki viðbragð við gagnrýninni Jón tók þó ekki undir það að þessi blaðamannafundur í dag væri viðbragð við gagnrýninni. HSÍ hefur ekki haldið blaðamannafundi í síðustu verkefnum kvennalandsliðsins en boðaði skyndilega til fundar eftir að gagnrýnisraddir heyrðust. „Þetta er eitthvað sem var búið að ákveða fyrir töluverðum tíma. Þetta er ekki viðbragð. Svona verður þetta bara,“ sagði Jón en viðtalið má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Jón Halldórsson svarar gagnrýni um kynjamismunun hjá HSÍ Blaðamannafundur HSÍ vegna komandi umspilsleikja hjá kvennalandsliðinu fer fram klukkan 13:00 í dag og verður í beinni útsendingu á Vísi.
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2026 HSÍ Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Haukur leiddi endurkomu Löwen Handbolti Fleiri fréttir Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Sjá meira