Bára nýr fjármálastjóri Samherja Lovísa Arnardóttir skrifar 25. mars 2026 10:43 Bára hefur starfað hjá Samherja í tvo áratugi. Aðsend Bára Eyfjörð Jónsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Samherja hf. Bára hefur starfað hjá Samherja um tveggja áratuga skeið og gegnt ábyrgðarstöðum á sviði fjármála þvert á samstæðuna.
Í tilkynningu segir að samhliða ráðningunni hafi fjármálasvið og upplýsingatæknisvið Samherja Íslands ehf. verið sameinuð undir stjórn Finnboga Reynissonar sem verður fjármálastjóri félagsins. Þá mun Jón Rafn Ragnarsson einbeita sér að fjármálastjórn Samherja fiskeldis ehf. en hann hefur verið fjármálastjóri samstæðu Samherja frá árinu 2016. Samherji hf. er móðurfélag samstæðu Samherja en þar undir eru dótturfélögin Samherji Ísland ehf., sem sér um veiðar og vinnslu, sölufélagið Ice Fresh Seafood ehf. og Samherji fiskeldi ehf., sem stundar fiskeldi á landi. „Þann tíma sem ég hef starfað hjá Samherja hef ég sinnt fjölbreyttum og krefjandi verkefnum. Þar má nefna fjármögnun á ólíkum sviðum starfseminnar og umbreytingar á fjármálasviði. Þannig hef ég fengið tækifæri til að taka þátt í þróun og uppbyggingu félagsins í gegnum árin. Ég er þakklát forstjóra Samherja fyrir það traust sem mér er sýnt með ráðningu í starf fjármálastjóra og er spennt að taka við nýrri stöðu,“ segir Bára Eyfjörð Jónsdóttir í tilkynningunni. Ráðningin rökrétt skref Þar kemur einnig fram að Bára er með B.Sc.-gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur unnið allan sinn starfsferil hjá Samherja en hún hóf störf samhliða háskólanámi árið 2006 og var síðan ráðin fjárreiðustjóri Samherja hf. á árinu 2007 að lokinni útskrift. Hún hefur verið fjármálastjóri Samherja Íslands ehf. frá ágúst 2025. Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja hf. segir að ráðning Báru hafi verið rökrétt skref þegar það lá fyrir að breytingar yrðu á framkvæmdastjórn. „Bára hefur verið lykilstarfsmaður hjá Samherja um margra ára skeið. Hún er öllum hnútum kunnug í rekstrinum og þekkir vel fjármál, innviði og ólík svið. Ég hlakka til að starfa með henni að áframhaldandi uppbyggingu félagsins,“ segir Baldvin.
Sjávarútvegur Vistaskipti Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Sjá meira