Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Árni Sæberg skrifar 30. september 2026 10:37 Play fór í sitt fyrsta áætlunarflug til Lundúna í júní 2021. Síðar bættist Ameríkuflug við, en félagið ákvað að draga úr því þegar reksturinn gekk illa. Vísir/Vilhelm Ábyrgðasjóður launa ráðgerir að hefja afgreiðslu launakrafna vegna Play 1. febrúar á næsta ári, rúmum sextán mánuðum eftir að flugfélagið hætti starfsemi. Bjarki Þór Runólfsson forstöðumaður sjóðsins segir að stefnt sé að því að ljúka afgreiðslunni 15. mars.
Í gær var ár liðið frá því að Play felldi niður allar flugferðir sínar og um 400 manns misstu vinnuna. Bjarki segir að sjóðurinn hafi fengið umsögn skiptastjóra um 385 samþykktar forgangskröfur vegna Play. Þær séu samtals upp á rúmlega 1,2 milljarða króna. Ábyrgðasjóður launa á enn eftir að afgreiða umsóknirnar og ákveða hvað hann greiðir af hverri kröfu. Bjarki segir ástæðu þess að afgreiðslan hefjist ekki fyrr vera mikinn fjölda mála sem hafi safnast upp hjá sjóðnum, auk fjölda krafna vegna Play. Greiðsla að jafnaði innan viku frá samþykkt Að sögn Bjarka nær áætlunin fyrir febrúar og mars aðeins til krafna sem skiptastjóri hefur samþykkt, sent sjóðnum umsögn um og sótt hefur verið um greiðslu fyrir. Vanti gögn í einstök mál geti þau tafist, þótt Bjarki segi það undantekningu. Sum mál gætu jafnframt verið afgreidd fyrr en áætlað er. „Greiðsla berst að jafnaði innan viku frá því að krafa hefur verið afgreidd og samþykkt,“ segir Bjarki. Um 1.700 kröfur höfðu verið gerðar í þrotabú Play þegar kröfuskrá þess var birt í febrúar. Þar á meðal voru launakröfur fyrrverandi starfsfólks.Vísir/Vilhelm Bjarki segir að þau sem þegar hafa sótt um greiðslu þurfi almennt ekki að senda frekari gögn. Lögmenn þeirra hafi að líkindum þegar skilað því sem þarf. „Komi upp atvik þar sem frekari gögn vantar verður lögmaður viðkomandi kröfuhafa látinn vita.“ Þegar greiðsla fer fram fær lögmaðurinn, að sögn Bjarka, sundurliðun á niðurstöðu sjóðsins og kemur henni áfram til starfsmannsins. Hann segir kröfur sem skiptastjóri hefur ekki tekið endanlega afstöðu til verða afgreiddar þegar umsögn um þær berst sjóðnum. Ágreiningur um uppsagnir Bjarki segir fyrirsjáanlegt að ágreiningsmál verði rekin um hvort starfsfólki Play hafi verið sagt upp í september 2025. Í frétt Vísis frá því í mars kom fram að skiptastjóri og starfsfólk væru ósammála um hvort uppsagnarfresturinn hefði staðið til loka desember eða janúar. Bjarki segir að sjóðurinn muni engu að síður reyna að afgreiða þann hluta samþykktra krafna sem ekki er ágreiningur um. Ef niðurstaða ágreiningsmálanna leiðir síðar til þess að skiptastjóri breytir afstöðu sinni mun sjóðurinn taka mið af því. Þegar kröfuskrá þrotabúsins var birt í febrúar greindi Vísir frá því að um 1.700 kröfur hefðu verið gerðar í búið, samtals upp á um 21 milljarð króna. Þar voru taldar kröfur farþega og fyrirtækja auk krafna starfsfólks. Frá fyrsta flugi til gjaldþrots Í samantekt Vísis um sögu Play kemur fram að félagið hafi verið kynnt til sögunnar árið 2019, eftir fall WOW air. Það hóf áætlunarflug til Lundúna 24. júní 2021 og bætti síðar við flugi til Norður-Ameríku. Haustið 2024 tilkynnti Play að það ætlaði að draga úr Atlantshafsflugi, sem stjórnendur sögðu hafa valdið vonbrigðum í rekstri. Þess í stað skyldi leggja meiri áherslu á sólarlandaferðir og flug fyrir önnur félög. Í tilkynningunni þegar starfsemin var stöðvuð ári síðar sagði stjórn Play að breytingarnar hefðu ekki dugað til að vinna á vanda félagsins. Stjórn Play óskaði eftir gjaldþrotaskiptum sama dag og fluginu var hætt, 29. september 2025.
Gjaldþrot Play Flug Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bein útsending: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Sjá meira