Viðskipti innlent

Opna fljót­lega fyrir um­sóknir vegna ráð­stöfunar sér­eignar

Lovísa Arnardóttir skrifar
Unnið hefur verið að því að sníða kerfið að breyttum reglum hjá Skattinum í allt sumar.
Unnið hefur verið að því að sníða kerfið að breyttum reglum hjá Skattinum í allt sumar. Vísir/Vilhelm

Skatturinn stefnir að því að opna fyrir umsóknir fljótlega um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. Samkvæmt svörum frá embættinu er enn unnið að uppfærslum á kerfum sem eiga að halda utan um umsóknir vegna ráðstöfunarinnar. 

Úrræðið átti að taka gildi í dag en lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi í júní. Samkvæmt lögunum er gert ráð fyrir að fólk muni geta ráðstafað sinni séreign í október frá og með 1. janúar afturvirkt. Leiðbeiningar verða birtar síðar í dag á island.is um nýtingu úrræðisins.

Samkvæmt svörum frá skattinum er stefnt að því að opna fyrir umsóknir fljótlega og að það verði auglýst sérstaklega á næstu dögum.

Samkvæmt skriflegu svari Skattsins er í grunninn notast við sama kerfi og áður við móttöku umsókna og afgreiðslu þeirra.

„Þó hefur þurft að leggja mikla vinnu í uppfærslur á því kerfi vegna þeirra breytinga sem lög nr. 71/2026 kveða á um,“ segir í svarinu.

Sjá hversu mikið er eftir inni í umsókn

Þá segir að verkefnið sé nokkuð umfangsmikið því ljóst sé að stór hluti landsmanna hafi nýtt sér það að ráðstafa séreignasparnaði inn á lán og gera megi ráð fyrir því að margir muni vilja halda ráðstöfun áfram eða hefja ráðstöfun í fyrsta skipti.

Í nýju lögunum er heimild til að ráðstafa séreign samanlagt í 120 mánuði en var áður í samfellda 120 mánuði. Í frétt um málið í júlí kom fram að stefnt yrði að því að unnt verði að sjá hversu langan tíma af 120 mánuðunum viðkomandi hefur þegar nýtt og jafnframt hversu langur tími er eftir af heimildinni.

Samkvæmt svörum Skattsins um málið munu geta umsækjendur séð í umsókn sinni hversu marga mánuði þeir eiga eftir og eiga ekki að þurfa að reikna það sjálfir.

„Rétt er að benda á að umsóknir gilda um iðgjöld sem greidd eru eftir að umsókn berst. Frá þessu er ein undantekning þannig að umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 gilda frá janúar 2026,“ segir að lokum.

Tímabundin en nú varanleg

Ráðstöfunin var fyrst kynnt árið 2014 undir formerkjum leiðréttingar og var hægt að sækja um hana á heimasíðunni leiðretting.is. Í umfjöllun um málið í sumar kom fram í svörum Skattsins að þróun kerfisins væri umfangsmikil. Eldra „leiðréttingakerfi“ um ráðstöfun á séreignarsparnaði hafi átti að gilda í tvö og hálft ár en hafi svo ítrekað verið framlengt í stuttan tíma í einu. 

Af þessum ástæðum hafi þurft að smíða kerfið á stuttum tíma og vegna þess að um var að ræða tímabundna ráðstöfun hafi ekki verið ráðist í umfangsmiklar umbætur á því þar sem óljóst var hversu lengi heimildirnar yrðu í gildi. Nú hefur það verið gert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×