Körfubolti

Til í að skrifa söguna í kvöld með KR sem ný­liðar: „Mjög klárar í verk­efnið“

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik KR og Njarðvíkur í síðustu umferð þar sem sigur KR tryggði hreinan úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn gegn Haukum í kvöld. Hér má sjá Rebekku Rut Steingrímsdóttur, leikmann KR og íslenska landsliðsins, með boltann.
Frá leik KR og Njarðvíkur í síðustu umferð þar sem sigur KR tryggði hreinan úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn gegn Haukum í kvöld. Hér má sjá Rebekku Rut Steingrímsdóttur, leikmann KR og íslenska landsliðsins, með boltann. Vísir/Pawel

KR gæti í kvöld orðið fyrsta liðið til að verða deildar­meistari efstu deildar kvenna í körfu­bolta sem nýliði. Liðið mætir ríkjandi Ís­lands­meisturum Hauka á Ásvöllum í hreinum úr­slita­leik um deildar­meistara­titilinn. Þjálfari KR segir sitt lið klárt í verk­efni kvöldsins, til­búið í að skrifa söguna.

„Ég held það sé alltaf stemning í Vestur­bænum fyrir titli,“ segir Daníel í sam­tali við Vísi að­spurður um stemninguna fyrir úr­slita­leik kvöldsins við Hauka um deildar­meistara­titilinn

„Það er frábært að vera á þessum stað sem nýliðar í þessari deild, góð viður­kenning fyrir stelpurnar sem hafa staðið sig vel í allan vetur. Ég held að hópurinn sé bara sprækur og spenntur fyrir kvöldinu.“

Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR.KR

Nýliðar hafa aldrei orðið deildar­meistarar efstu deildar kvenna í körfu­bolta áður en dæmi er um nýliða sem hafa farið alla leið og orðið Ís­lands­meistarar án þess að hafa unnið deildar­meistara­titilinn. Lið Breiða­bliks gerði það árið 1995 og Njarðvík svo árið 2022.

Þið getið skrifað söguna í kvöld með því að verða fyrstu nýliðarnir til að verða deildar­meistarar. Það hlýtur að vera ansi stór og góð gul­rót fyrir ykkur?

„Það ætti ekki að þurfa neitt annað en akkúrat það til þess að móti­vera sig fyrir þennan leik. Að verða fyrsta liðið til að gera eitt­hvað í sögunni. Við erum mjög klárar í verk­efnið, klárar í að klára þetta í kvöld. Ég reikna með hörku mætingu frá KR-ingum á Ásvelli.“

Íslandsmeistarar á flugi

KR býr að því að sækja sigur gegn Ís­lands­meisturunum á Ásvöllum. Það gerði liðið fyrr á tíma­bilinu.

„Það hafa átt sér stað breytingar á leik­manna­hópi Hauka síðan þá og lítur út fyrir að þær séu að spila sinn besta körfu­bolta akkúrat núna. Boltinn er að hreyfast hratt hjá þeim og pressan að smella hjá þeim varnar­lega. Þetta er bara hörku hópur, troðfullur af reynslu­miklum leik­mönnum og góðum er­lendum leik­mönnum. Það er bara spurning hvort við náum ekki að setja fókusinn á rétta staði til að hægja á þeirra helstu hestum og keyra eitt­hvað í bakið á þeim í leiðinni líka. Við bara erum vonandi með svörin við þeirra leik í kvöld og sjáum hvort við náum ekki að stela þessu af þeim.“

Lið KR var á toppi deildarinnar um áramótin og hefur verið í topp­baráttu deildarinnar sem nýliði. Gengi liðsins verið vonum framar.

„Stefnan var svo sem bara sett á að ná heima­vallarrétti í úr­slita­keppninni. Við erum búin að tryggja okkur það með sigri í síðustu um­ferð. Það var kannski ekki alveg í kortunum að vera efstar um áramót og vera keppa um deildar­meistara­titil í kvöld. Á ári eitt horfði maður kannski á ár tvö sem árið sem við myndum keyra á allt saman. En bara betra að vera þá fyrr á ferðinni ef það er mögu­leiki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×