Til í að skrifa söguna í kvöld með KR sem nýliðar: „Mjög klárar í verkefnið“ Aron Guðmundsson skrifar 25. mars 2026 12:32 Frá leik KR og Njarðvíkur í síðustu umferð þar sem sigur KR tryggði hreinan úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn gegn Haukum í kvöld. Hér má sjá Rebekku Rut Steingrímsdóttur, leikmann KR og íslenska landsliðsins, með boltann. Vísir/Pawel KR gæti í kvöld orðið fyrsta liðið til að verða deildarmeistari efstu deildar kvenna í körfubolta sem nýliði. Liðið mætir ríkjandi Íslandsmeisturum Hauka á Ásvöllum í hreinum úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn. Þjálfari KR segir sitt lið klárt í verkefni kvöldsins, tilbúið í að skrifa söguna. „
Ég held það sé alltaf stemning í Vesturbænum fyrir titli,“ segir Daníel í samtali við Vísi aðspurður um stemninguna fyrir úrslitaleik kvöldsins við Hauka um deildarmeistaratitilinn „Það er frábært að vera á þessum stað sem nýliðar í þessari deild, góð viðurkenning fyrir stelpurnar sem hafa staðið sig vel í allan vetur. Ég held að hópurinn sé bara sprækur og spenntur fyrir kvöldinu.“ Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR.KR Nýliðar hafa aldrei orðið deildarmeistarar efstu deildar kvenna í körfubolta áður en dæmi er um nýliða sem hafa farið alla leið og orðið Íslandsmeistarar án þess að hafa unnið deildarmeistaratitilinn. Lið Breiðabliks gerði það árið 1995 og Njarðvík svo árið 2022. Þið getið skrifað söguna í kvöld með því að verða fyrstu nýliðarnir til að verða deildarmeistarar. Það hlýtur að vera ansi stór og góð gulrót fyrir ykkur? „Það ætti ekki að þurfa neitt annað en akkúrat það til þess að mótivera sig fyrir þennan leik. Að verða fyrsta liðið til að gera eitthvað í sögunni. Við erum mjög klárar í verkefnið, klárar í að klára þetta í kvöld. Ég reikna með hörku mætingu frá KR-ingum á Ásvelli.“ Íslandsmeistarar á flugi KR býr að því að sækja sigur gegn Íslandsmeisturunum á Ásvöllum. Það gerði liðið fyrr á tímabilinu. „Það hafa átt sér stað breytingar á leikmannahópi Hauka síðan þá og lítur út fyrir að þær séu að spila sinn besta körfubolta akkúrat núna. Boltinn er að hreyfast hratt hjá þeim og pressan að smella hjá þeim varnarlega. Þetta er bara hörku hópur, troðfullur af reynslumiklum leikmönnum og góðum erlendum leikmönnum. Það er bara spurning hvort við náum ekki að setja fókusinn á rétta staði til að hægja á þeirra helstu hestum og keyra eitthvað í bakið á þeim í leiðinni líka. Við bara erum vonandi með svörin við þeirra leik í kvöld og sjáum hvort við náum ekki að stela þessu af þeim.“ Lið KR var á toppi deildarinnar um áramótin og hefur verið í toppbaráttu deildarinnar sem nýliði. Gengi liðsins verið vonum framar. „Stefnan var svo sem bara sett á að ná heimavallarrétti í úrslitakeppninni. Við erum búin að tryggja okkur það með sigri í síðustu umferð. Það var kannski ekki alveg í kortunum að vera efstar um áramót og vera keppa um deildarmeistaratitil í kvöld. Á ári eitt horfði maður kannski á ár tvö sem árið sem við myndum keyra á allt saman. En bara betra að vera þá fyrr á ferðinni ef það er möguleiki.“
Bónus-deild kvenna KR Haukar Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira