Handbolti

Enginn slaki gefinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands.
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands. Vísir/Ívar Fannar

Snorri Steinn Guðjónsson segir mikla spennu fyrir komandi landsleikjum Íslands við Svíþjóð á fimmtudag og laugardag. Hann leggur áherslu á að nálgast verkefnið af sama krafti og önnur.

„Það er alltaf gaman að koma saman og mín upplifun er sú að það sé alltaf góð stemning hjá drengjunum. Vissulega er aðeins gaman núna eftir gott mót og að fá að spila leiki hérna heima, sem er bara skemmtilegt,“ segir Snorri á fyrstu æfingu landsliðsins í gær.

Nokkra vantaði þá enn í hópinn, til að mynda Gísla Þorgeir Kristjánsson og Viggó Kristjánsson, sem höfðu spilað í þýsku deildinni á sunnudag. Hópurinn kom allur saman í gærkvöld.

„Í rauninni ákvað ég að gera það þannig núna. Það voru töluverður fjöldi að spila í gær og í stað þess að bruna heim á æfingu seinni partinn beint af flugvellinum, þá fá þeir smá andrými. Svo hittumst við í kvöld og borðum saman,“ segir Snorri.

Yngri menn innan um atvinnumenn

Þónokkra yngri leikmenn mátti sjá á æfingu liðsins í gær. Drengir úr U20 landsliðinu fengu þar tækifæri til að máta sig við atvinnumenn Íslands.

„Það er heill hellingur og ég hef svo sem alveg gert það inn á milli. Að leyfa strákum hér heima til að fá tækifæri til að kynnast þessu. Þeir eru í fleiri kantinum í þetta skipti og HM undankeppni ekki fram undan,“

„Þetta eru margir strákar úr 20 ára liðinu. Það er gaman fyrir mig og okkur í teyminu að sjá þessa stráka á æfingum og í samanburði við okkar bestu leikmenn,“ segir Snorri.

Lúxusstaða

Mikill lúxus sé að fá tvo leiki við stórþjóð hér heima. Ísland mætir Svíþjóð að Hlíðarenda klukkan 19:30 á fimmtudagskvöld og svo klukkan 17:00 í Kaplakrika á laugardaginn kemur.

„Ef við skoðum söguna þá hefur þetta ekki verið daglegt brauð, það hefur reynst erfitt að fá lið hingað heim. Þetta er geggjað fyrir okkur, fyrir áhorfendur og handboltaáhugafólk að fá tvö heimsklassalið að spila á okkar heimavelli. Okkur hlakkar mikið til,“ segir Snorri sem skynjar spennu í hópnum.

„Allir þessir strákar vilja koma heim. Ég þekki það sjálfur frá því að hafa verið leikmaður og búsettur erlendis að það er gott og gaman að koma heim. Maður saknar þess alltaf erlendis að vera ekki hérna. Þetta kærkomið fyrir þá að kúpla sig út úr sínu erlendis að spila fyrir framan fulla höll og hitta strákana,“ segir Snorri.

Sterkasta liðið á að sýna alvöru frammistöðu

En hvað vill landsliðsþjálfarinn fá út úr komandi verkefni?

„Ég vil klárlega fá góða frammistöðu og mun leggja áherslu á að við séum að gera þetta almennilega. Að það sé einbeiting í hópnum og við séum að nýta tímann. Að fara að slaka á vegna þess að það er engin undankeppni fram undan væri bara lélegt og eitthvað sem ég vil ekki sjá. Það er ekkert að því að það sé létt yfir þessu, þar sem þetta eru æfingaleikir og allt það,“

„En við þurfum að halda áfram að vinna í okkar málum. Ég valdi mitt sterkasta lið og það er hellingur sem við getum drillað til að halda áfram að bæta okkur. Hver gluggi er mikilvægur sama hvers eðlis hann er. Við þurfum að gera þetta vel,“ segir Snorri.

Geta sýnt sig og sannað

Þá gefst ákveðnum leikmönnum tækifæri til að sýna sig og sanna. Til að mynda Stiven Tobar Valencia og Sigvaldi Björn Guðjónsson, sem voru ekki í lokahópnum fyrir EM í janúar. Þó Sigvaldi hafi vissulega komið inn í hópinn undir lok mótsins vegna meiðsla í íslenska hópnum.

„Hver gluggi er tækifæri til þess, það segir sig sjálft. Við erum með mjög sterkan kjarna og við erum með frábæra leikmenn sem mynda hann. En fyrir hvert stórmót er ég með 20 til 25 leikmenn sem eru að berjast um sæti í lokahópnum,“

„Hann er yfirleitt bara 18 leikmenn. Ef við tökum síðasta hóp, þá var erfitt að velja hann og erfitt að skilja menn eins og Stiven og sigvalda eftir. Það segir sig sjálft að þegar við komum saman er gott fyrir leikmenn að sýna sig og standa sig vel,“ segir Snorri Steinn.

Viðtalið má sjá í heild í spilaranum að neðan.

Klippa: Snorri ræðir Svíaleikina



Fleiri fréttir

Sjá meira


×