Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. mars 2026 15:31 Edda Hermannsdóttir er forstjóri Lyfja og heilsu. Vísir/Samsett Lyfjaverslanir undir vörumerkjunum Lyf og heilsa, Apótekarinn, Garðs apótek og Apótek Hafnarfjarðar munu sameinast undir vörumerki Apótekarans á næstu dögum og vikum.
Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að breytingin sé hluti af nýrri stefnu sem var kynnt fyrir starfsfólki í dag á stefnufundi félagsins samhliða breytingum á vörumerkjum félagsins. Móðurfélagið Lyf og heilsa rekur 27 lyfjaverslanir víðs vegar um landið ásamt tveimur gleraugnaverslunum og fleiru. Samhliða breytingunum kemur fram að nýr vefur og app verði kynnt til leiks á næstu misserum og vildarkerfi sem mun heita Apótekarinn+. „Hlýtt vörumerki Apótekarans er aðgreinandi og sterkt. Apótekarinn hefur hlotið margar viðurkenningar og er þekkt fyrir góða þjónustu og hagstæð verð. Líkt og nafnið ber með sér lýsir það vel þeirri þjónustu sem við viljum bjóða þar sem viðskiptavinir okkar eru í flestum tilfellum að leitast eftir að líða betur. Við viljum vera ráðgjafar þegar á þarf að halda og þar sem engin umræðuefni eru óþægileg,“ er haft eftir Eddu Hermannsdóttir forstjóri Lyfja og heilsu. „Á næstu misserum kynnum við nýjan vef, app og öflugt vildarkerfi sem mun gera upplifun viðskiptavina enn betri. Þar verður lögð mikil áhersla á heilsufræðslu frá starfsfólki og öðrum fagaðilum í heilbrigðisþjónustu. Vöruframboð félagsins í heilsuvörum verður eflt og við munum styrkja stöðu okkar með mesta úrval landsins af snyrtivörum á þessum markaði. Við hlökkum til að kynna nýjan og endurbættan Apótekara til leiks.“
Lyf Neytendur Heilsa Verslun Mest lesið Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Sjá meira