Lífið

Fimmta dóttirin skírð Ozzy

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Jack Osbourne heiðraði látinn föður sinn með því að skíra fimmtu dóttur sína í höfuð á honum.
Jack Osbourne heiðraði látinn föður sinn með því að skíra fimmtu dóttur sína í höfuð á honum. Getty

Jack Osbourne, sjónvarpsmaður og sonur Ozzy Osbourne, og eiginkona hans, innanhúsarkitektinn Aree Osbourne, eignuðust dóttur 5. mars síðastliðinn og hefur hún fengið nafnið Ozzy Mathilda Osbourne.

Hjónin tilkynntu fregnirnar í sameiginlegri Instagram-færslu með Sharon Osbourne, móður Jacks og ekkju Ozzy.

Á myndinni mátti sjá nýburann liggjandi með skilti sér við hlið sem á stóð „Halló heimur“ ásamt helstu upplýsingum um barnið. Við færsluna stóð: „Við kynnum til leiks Ozzy Mathildu Osbourne“.

Ozzy er annað barn þeirra hjóna en fyrir eiga þau dótturina Maple sem fæddist 2022. Auk þess á Jack þrjú börn úr fyrra hjónabandi, allt saman stelpur. Hann er því fimm stúlkna faðir.

Rokkgoðsögnin Ozzy Osbourne lést í júlí á síðasta ári, 76 ára að aldri, eftir að hafa greinst með Parkinson-sjúkdóminn árið 2019.

Ozzy hélt síðustu tónleika sína, góðgerðartónleikana Back to the Beginning, sautján dögum fyrir andlátið þegar hann steig á svið með Black Sabbath í Villa Park í Birmingham. Fjölmargar stórar þungarokkssveitir stigu þar á svið og söfnuðust í heildina 140 milljónir punda.


Tengdar fréttir

Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman

Rokkgoðsögnin Ozzy Osbourne, sem féll frá í gær, er samkvæmt kenningum netverja endurfæddur sem sonur samfélagsmiðlastjörnunnar Trishu Paytas og þannig bróðir Elísabetar Englandsdrottningar endurfæddrar og jafnvel Frans páfa. Drengurinn heitir Aquaman Moses.

Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne

Myrkraprinsinn Ozzy Osbourne féll frá 22. júlí síðastliðinn, 76 ára gamall. Ozzy mótaði þungarokk með hljómsveitinni Black Sabbath, átti farsælan sólóferil og er þekktasti þungarokkari sögunnar. Hér verður farið yfir feril hans í þrettán lykillögum.

Ozzy Osbourne allur

Breska rokkstjarnan Ozzy Osbourne er látinn 76 ára að aldri. Fjölskylda hans greinir frá þessu. Áhrif hans á rokksöguna voru mikil, og hlaut hann viðurnefnið myrkraprinsinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.