„Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. mars 2026 12:19 Teitur Örlygsson varaði vini og vandamenn við þessum breytingum. sýn sport Keflavík gerði stór mistök með því að láta Darryl Morsell fara frá liðinu fyrir Remy Martin, að mati sérfræðinga Bónus Körfuboltakvölds.
Morsell var látinn fara í kringum áramótin og Remy Martin kom í hans stað. Martin hefur aðeins spilað þrjá leiki fyrir liðið og glímt við meiðsli að undanförnu. Á meðan hefur Morsell blómstrað með liði ÍA, meðal annars í sigri gegn Keflavík. Þó Keflavík hafi komist aftur á sigurbraut í þessari umferð gegn Álftanesi og sé með sæti í úrslitakeppninni tryggt, segja sérfræðingarnir að liðið væri í enn betri stöðu með Morsell innanbúða. „Það sem maður hefði áhyggjur af hjá honum í Keflavík, hvort hann væri nógu mikill go to gæji, hann er að sýna það að hann getur tekið af skarið og verið aðalskorarinn,“ sagði Benedikt Guðmundsson. Teitur Örlygsson tók undir og segist hafa séð fyrir um þessi mistök. „Ég var nú alveg ófeiminn við að segja það, bæði hér í þættinum og við vini mína, þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla. Nú hugsar maður um þetta Keflavíkurlið, að þeir hafi ekki verið aðeins þolinmóðir og leyft liðinu að stilla sig betur saman. Maður hugsar, ef þú bætir Morsell inn í varnarleik Keflvíkinga, af því hann er frábær varnarmaður líka… Ég er sannfærður um það, ef Keflavík hefði ekki farið í þessar breytingar, þá væru þeir með heimaleikjarétt í fyrstu umferð [en ekki í 5. sæti],“ sagði Teitur. Klippa: Körfuboltakvöld: Mistök hjá Keflavík að láta Morsell fara
Bónus-deild karla Keflavík ÍF ÍA Mest lesið Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Fleiri fréttir Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Sjá meira