Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Lovísa Arnardóttir skrifar 4. mars 2026 22:17 Notendur Android-síma eiga í hættu að vera rukkaðir fyrir fargjald þó svo að þeir séu með Klapp-kort. Mikilvægt er að loka fyrir veskið í símanum svo það gerist ekki. Vísir/Vilhelm Neytendastofa hefur nú til skoðunar tíu ábendingar vegna ofrukkunar fargjalda hjá Strætó. Notendur Android-síma hafa lent í því að vera rukkaðir um fargjald þó svo að þeir séu með áskriftarkort í símanum. Jóhannes Rúnar Svavarsson framkvæmdastjóri Strætó segir einhverja tugi hafa tilkynnt slíka rukkun til Strætó og þær hafi allar verið endurgreiddar.
Samkvæmt upplýsingum frá Neytendastofu er málið til meðferðar hjá þeim. Neytendastofa leysir þó ekki úr einkaréttarlegum ágreiningi varðandi endurgreiðslu og er því málið aðeins til skoðunar hjá stofnuninni með tilliti til þess hvort brotið hafi verið gegn góðum viðskiptaháttum og, ef svo er, hvort tilefni sé til aðgerða af hálfu Neytendastofu. Strætó setti tilkynningu um ofrukkunina á Facebook-síðu sína í síðasta mánuði og svo á heimasíðu sína í dag. Þar er vakin athygli á því að sumir Android-notendur hafi lent í því að veskið í símanum taki yfir QR-kóðann í appinu þegar síminn er borinn að skannanum og greiða þannig fyrir stakan miða með snertilausri greiðslu. Jóhannes Svavar segir í samtali við fréttastofu að unnið sé að lausn en það sé enn ekki búið að loka fyrir þetta. Tilraun hafi verið gerð til að loka fyrir þetta þann 13. febrúar en það hafi ekki tekist. Hann segir að Strætó hafi borist tugir kvartana vegna málsins og að við þeim hafi verið brugðist með endurgreiðslu. Á vef Strætó má finna leiðbeiningar um hvernig sé hægt að komast hjá þessu. Eigi í erfiðleikum með endurgreiðslu „Við höfum endurgreitt öllum sem hafa lent í þessu og settum tilkynningu svo aðrir væru meðvitaðir um þetta og að þau eigi rétt á endurgreiðslu,“ segir Jóhannes Svavar. Notendur hafa verið í sambandi við fréttastofu og hafa þó greint frá því að erfitt hafi verið að fá Strætó til að viðurkenna vandann og endurgreiða. Við tilkynningu Strætó á Facebook má einnig sjá nokkurn fjölda lýsa því að hafa lent í þessum vanda. Jóhannes Svavar segir forritara reyna að loka fyrir þetta en það hafi ekki enn tekist. Hann segir þetta eiga við um Android-síma og það virðist tilviljun hjá hverjum. „Í Android er veskið alltaf opið nema þú lokir því,“ segir hann og að það sé annað á iPhone þar sem þarf að ýta tvisvar á takka.
Strætó Neytendur Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Einungis sjö bílar kallaðir inn Kaupmáttur heldur áfram að aukast Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Innkalla vegna aðskotahlutar Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Sjá meira