„Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. mars 2026 10:02 Arnar Pétursson segir liðið hafa tekið miklum framförum frá síðustu leikjum í undankeppni EM. Vísir / Hulda Margrét Ísland mætir Svartfjallalandi í undankeppni EM í handbolta í kvöld og ytra á sunnudag. Landsliðsþjálfarinn segir laskað liðið ætla að spóla upp brekkuna sem það er komið í.
Stelpurnar okkar eru strax komnar í frekar slæma stöðu í undankeppninni eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum gegn Færeyjum og Portúgal. Nú er það svo Svartfjallaland, sem er fyrir fram skrifað sterkasta liðið í riðlinum. „Við fórum ekkert allt of vel af stað. Við fórum með nýtt lið inn í þá leiki en höfum verið að bæta okkur síðan og taka skref fram á við. Brekka, en við ætlum að spóla upp þessa brekku. Mér finnst við hafa gert vel, HM í heild sinni var mjög gott, við tókum skref fram á við þar í öllum þáttum leiksins. Það er langt um liðið síðan við spiluðum leik í þessari keppni, mikið gengið á og mikið verið gert sem ég er ánægður með. Núna þurfum við bara að halda áfram.“ Ísland og Svartfjallaland hafa ekki mæst í þessari undankeppni en liðin mættust mjög nýlega á HM í Þýskalandi, í leik sem endaði með sjö marka sigri Svartfjallalands. „Við tókum góðan fund í gær og skoðuðum þann leik aðeins. Mér finnst við eiga mikið inni. Við hefðum getað verið mun grófari og fastari fyrir varnarlega. Það er eitthvað sem við þurfum að gera á móti svona liði. Þær eru stórar og sterkar þannig að það er virkilega mikilvægt að við spilum á okkar styrkleikum og keyrum á þær“ sagði landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir. Frá því á HM hefur leikmannahópurinn tekið nokkrum breytingum. Meiðsli (Alfa Brá Hagalín Oddsdóttir), lokapróf (Díana Dögg Magnúsdóttir, verður með í seinni leiknum) og barneignaleyfi (Þórey Anna Ásgeirsdóttir) munu halda mikilvægum leikmönnum frá keppni. Thea Imani Sturludóttir æfði síðan ekki með liðinu í gær og verður að öllum líkindum ekki með í leikjunum tveimur. Það eru þó ekki bara forföll í hópnum heldur hefur Andrea Jacobsen jafnað sig af meiðslum og stefnir á að koma af krafti inn í þetta verkefni. „Ég er aftur kominn í spilform, verkjalaus og klár í þetta, hlakka mikið til að leggja mitt af mörkum. Ég fékk góðan tíma eftir stórmótið til að ná mér og hef spilað marga leiki með Blomberg í Þýskalandi. Ég myndi segja að þetta væri bara komið, búið og gleymt“ sagði Andrea um ökklameiðslin sem hrjáðu hana á HM. Fjallað var um leik Íslands og Svartfjallalands í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan. Leikurinn hefst klukkan 18:00 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2026 Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira