Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 28. febrúar 2026 16:51 Listi Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík var kynntur í dag. Aðsend Hildur Björnsdóttir, Bjarni Eggerts Guðjónsson, Brynjar Þór Níelsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason verða í efstu fimm sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Listinn var kynntur í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll nú fyrir stundu.
Listinn var samþykktur með öllum atkvæðum gegn tveimur á fundi Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík sídegis. Birgir Ármannsson, fyrrverandi forseti Alþingis, stýrði fundinum þar sem listinn var kynntur en fundinn sóttu nokkur hundruð Sjálfstæðismanna að því er segir í tilkynningu. Sjálf kynnti Hildur Björnsdóttir, oddviti floksinns í borginni, efstu fimmtán á lista en listann í heild sinni má finna neðar í fréttinni. Listi Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík var kynntur í dag. Aðsend Ákall sé um breytingar Kynning listans markar upphaf kosningabaráttu flokksins að því er fram kemur í tilkynningunni, en Hildur kynnti jafnframt niðurstöður skoðanakönnunar sem unnin var fyrir flokkinn sem sögð er sýna að yfir 70% borgarbúa kalli eftir breytingum í vor. „Þessi niðurstaða staðfestir það sem við finnum á hverjum degi í samtölum okkar við borgarbúa; fólk vill nýja forystu, skýrari stefnu og árangur í þeim málum sem varða daglegt líf þess,“ er haft eftir Hildi. „Breytingar gerast ekki af sjálfu sér. Þær krefjast liðs sem hefur bæði kjark, vilja og þor til að framkvæma. Við erum það lið! Það öfluga og samstæða lið sem skipar lista Sjálfstæðisflokksins og stendur mér hér að baki er staðráðið í að bretta upp ermar og láta verkin tala. Við erum breytingaraflið sem borgarbúar kalla eftir. Nú tökum við til í Reykjavík.“ Hildur Björnsdóttir kynnti fólkið sem skipar efstu sæti listans á opnum fundi í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll síðdegis í dag.aðsend Hér má finna lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í heild sinni: 1. Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi 2. Bjarni Eggerts Guðjónsson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs 3. Brynjar Þór Níelsson, lögfræðingur 4. Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi 5. Rúnar Freyr Gíslason, leikari 6. Guðný María Jóhannsdóttir, viðskiptafræðingur 7. Albert Guðmundsson, lögfræðingur og formaður Varðar 8. Bjarni Fritzson, rithöfundur og bókaútgefandi 9. Sigrún Ásta Einarsdóttir, framkvæmdastjóri 10. Björn Gíslason, borgarfulltrúi 11. Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi 12. Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur 13. Helga Margrét Marzellíusardóttir, tónskáld og kórstjóri 14. Safa Jemai, hugbúnaðarverkfræðingur og frumkvöðull 15. Daníel Hjörvar Guðmundsson, verslunarmaður og lögfræðingur 16. Elínborg Ásdís Árnadóttir, kennari 17. Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson, viðskiptastjóri 18. Már Másson, ráðgjafi og eigandi hjá Athygli 19. Katla Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri 20. Kristjón Jónsson, byggingatæknifræðingur og MBA 21. Ásthildur Bertha Bjarkadóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur 22. Elías Blöndal Guðjónsson, verslunarmaður 23. Arna Stjarna, gullsmiður 24. Luca Kostic, knattspyrnuþjálfari 25. Auður Jónsdóttir, viðskiptafræðingur og hagfræðingur 26. Eva Dögg M Sigurgeirsdóttir, viðskipta- og markaðsfræðingur 27. Stefán Karl Snorraon, mannauðsstjóri 28. Hlíf Sturludóttir, framkvæmdastjóri 29. Atli Guðjónsson, fagstjóri landupplýsinga 30. Tómas Orri Tryggvason, nemi 31. Kolbrún Ólafsdóttir, fyrrum sérhæfður leikskólastarfsmaður 32. Þórarinn Hjaltason, samgönguverkfræðingur 33. Anna Fríða Ingvarsdóttir, nemi 34. Logi Stefánsson, verslunarmaður 35. Georg Ingi Kulp, tónlistarmaður og rafvirkjanemi 36. Ingibjörg H. Sverrisdóttir, varaformaður SES 37. Alda María Þórðardóttir, formaður Heimdallar 38. Guðmundur Snorrason, endurskoðandi og formaður félags sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi 39. Erna Birgisdóttir, laganemi 40. Eydís Helga Viðarsdóttir, sagnfræðinemi 41. Berta Biering, fv. skrifstofufulltrúi 42. Bjarni Pálsson, framkvæmdastjóri og formaður félags sjálfstæðismanna á Kjalarnesi 43. Gunnar Örn Ólafsson, eftirlaunaþegi 44. Gestur Ólafsson, arkítekt og skipulagsfræðingur 45. Svava Johansen, kaupmaður 46. Ragnar Jónasson, rithöfundur
Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira