Eitt helsta kennileiti bæjarins rifið: „Þetta er annað heimilið mitt“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. mars 2026 13:39 „Það verður erfitt að kveðja. Það verður mikill söknuður af þessum stað,“ segir Smári Ólafsson. vísir/Lýður Valberg Eitt helsta kennileiti Akureyrar verður rifið á næstu mánuðum. Leigubílstjóri sem hefur starfað í húsinu í tæp 30 ár segir verulega sorglegt og erfitt að kveðja starfstöðina. Ekki er ljóst hvað verður um starfsemina enn sem komið er. „
Það verður erfitt að kveðja. Það verður mikill söknuður af þessum stað,“ segir Smári Ólafsson leigubílstjóri um Bifreiðastöð Oddeyrar. Í spilaranum hér að ofan má sjá þetta þekkta kennileiti Akureyrar þarf að víkja og verður rifið á næstu mánuðum að öllu óbreyttu. Þess í stað kemur nútímaleg nýbygging. Leigubílastöðin Bifreiðastöð Oddeyra hefur fengið frest til fyrsta maí til að flytja starfsemina af lóðinni í miðbæ bæjarins samkvæmt ákvörðun bæjarráðs. Skiptar skoðanir eru um færslu starfseminnar og breytta ásýnd miðsvæðisins í bænum ef marka má athugasemdir við frétt Akureyri.net um málið. „Fáránlegt, verið að skemma miðbæinn,“ segir einn á meðan annar segir ekkert hús vera jafn mikið fyrir. Einn af þeim sem syrgja hvarf hússins er leigubílstjóri sem hefur starfað þar í nær þrjátíu ár. „Auðvitað sér maður eftir þessu. Þetta er búinn að vera fastur punktur hérna í tilverunni og það verður skrítið að mæta á einhvern annan stað.“ Þú átt eflaust mikið af góðum minningum hérna? „Jú jú jú. Margar góðar minningar og margir karakterar sem hafa komið hér við.“ Bifreiðastöð Oddeyrar prýðir miðbæ Akureyrar.vísir/Lýður Valberg Eitt af því sem er erfiðast að kveðja við húsið er kaffistofa þar sem leigubílsstjórar hafa beðið í 70 ár eftir því að númerið þeirra verði kallað upp fyrir túr. Þar fór vel með mönnum þegar að fréttastofa fékk að kíkja í heimsókn. Að mati Smára mun það hafa töluverð áhrif á reksturinn að missa starfstöð í miðbænum. „Við þurfum að leita nýrra leiða til að reka þetta fyrirtæki. Við erum að reka verslun sem hefur stutt mikið við starfsemina. Við erum ekki að fara reka verslun í útjaðri bæjarins. Það eru þreyfingar í gangi með framtíðina. Við erum að reyna færa okkur inn í tæknina. Vonandi verður það bara raunin.“ Leigubílsstjórnarnir munu sakna kaffistofunnar þar sem þeir hafa beðið í áratugi. Starfsemin hefur verið í húsinu í nær 70 ár.Vísir/lýður valberg Guðjón Þór Helgason hefur einnig starfað í 30 ár við stöðina og sat í makindum sínum þegar fréttastofu bar að garði. Ertu að nýta allar stundir sem þú getur til að kveðja hérna áður en húsið verður rifið? „Já, það er svo ömurlegt að fara héðan eftir 30 ár.“ Ertu búinn að tengjast þessu húsi miklum tilfinningaböndum? „Já, þetta er annað heimilið mitt.“
Akureyri Leigubílar Hús og heimili Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira