Mesti snjórinn síðan í október: „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 20:02 Ferfætlingur á ferð í snjónum í fylgd með eiganda sínum á tveimur jafnfljótum. Vísir/Vilhelm Vetrarfærð er víða á vestanverðu landinu vegna snjókomu og gular viðvaranir voru gefnar út í dag vegna hríðarveðurs á höfuðborgarsvæðinu, og á Vestfjörðum og við Breiðafjörð sem taka gildi á morgun. Snjóinn tók að kyngja niður á höfuðborgarsvæðinu rétt um klukkan tvö í dag og var gul veðurviðvörun gefin út nær samstundis og veðrið skall á þar sem óljóst var framanaf hvar nákvæmlega úrkomubakkinn myndi ná landi.
Það er ekki á hverju ári sem það þykja tíðindi að það snjói í febrúar á Íslandi, en þetta er hins vegar í fyrsta sinn síðan í lok október sem sjóað hefur svo hressilega á höfuðborgarsvæðinu. Alhvíta daga sem verið hafa á höfuðborgarsvæðinu síðan má telja á fingrum annarrar handar, en samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var einn snjódagur í nóvember, tveir í desember og tveir í janúar. Í öll skiptin var þó um að ræða töluvert minni snjó en féll í dag, og í október þegar snjókomumet í mánuðinum var slegið. Þeir allra hörðustu létu ekki smá snjókomu á sig fá og fóru leiðar sinnar á reiðhjóli.Vísir/Vilhelm Það var allur gangur á því hvort fólk sem fréttastofa ræddi við í dag var tilbúið fyrir snjókomuna þegar hún skall á í höfuðborginni síðdegis, líkt og heyra má í fréttinni hér að neðan. Lóló Rósenkrans er ein þeirra sem var ekki beint tilbúin í snjókomuna, en lætur snjóinn þó ekki á sig fá. „Stóð þetta eitthvað til? Ætluðum við að gera þetta núna? Nei, ég var ekki að bíða eftir honum,“ segir Lóló létt í bragði. „En það er ekkert að þessu, yndislegt veður.“ Gul viðvörun var í gildi til klukkan sjö í kvöld á höfuðborgarsvæðinu en snjókomubakkinn hefur síðan fært sig vestur eftir landinu og tekur gul viðvörun gildi á Vestfjörðum snemma í fyrramálið og rétt fyrir hádegi á norðanverðu Snæfellsnesi og annars staðar við Breiðafjörð. Vegfarendur eru hvattir til að hafa varann á og kynna sér veður og færð áður en lagt er af stað, einkum þeir sem eiga leið um fjallvegi á vestanverðu landinu, þar sem hálka, skafrenningur og þæfingsfærð gæti sett strik í reikninginn.
Veður Reykjavík Færð á vegum Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira