Reynir með tólf marka kvöld í Evrópudeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2026 21:23 Reynir Þór Stefánsson, hér til vinstri, átti frábæran leik í kvöld en því miður dugði það ekki til sigurs. @mtmelsungen Tveir af vonandi framtíðarmönnum íslenska karlalandsliðsins í handbolta, Þorsteinn Leó Gunnarsson og Reynir Þór Stefánsson, sýndu býr í þeim í Evrópudeildinni í kvöld en Reynir átti algjöran stórleik og kom að sautján mörkum.
Reynir Þór Stefánsson var með tólf mörk fyrir þýska liðið Melsungen og Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði sex mörk fyrir portúgalska félagið Porto. Báðir fóru þeir mikinn á upphafskafla leikjanna. Porto vann tveggja marka útisigur á spænska félaginu Fraikin BM. Granollersm, 29-27, eftir að hafa verið með forystuna allan tímann. Þorsteinn Leó skoraði fjögur af níu fyrstu mörkum Porto sem voru komnir 9-3 yfir í upphafi leiks en þá var íslenska skyttan búin að skora fleiri mörk en spænska liðið. Porto var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 12-8, og Þorsteinn var með fimm mörk úr sjö skotum í fyrri hálfleiknum. Porto vann þarna sinn annan sigur í riðlinum en liðið náði Elverum að stigum í öðru sætinu. Melsungen byrjaði vel á móti HC Vardar 1961 í Norður-Makedóníu en varð á endanum að sætta sig við fjögurra marka tap, 37-33. Reynir Þór var langatkvæðamestur á vellinum með tólf mörk úr nítján skotum en hann skoraði ekkert þeirra af vítalínunni og gaf einnig fimm stoðsendingar. Reynir Þór Stefánsson byrjaði sinn leik líka virkilega vel og var kominn með fimm af fyrstu þrettán mörkum Melsungen. Melsungen komst mest sex mörkum yfir í fyrri hálfleiknum, 15-9, en leiddi með einu marki í leikhléi, 19-18. Reynir Þór var með sex mörk í fyrri hálfleiknum. Vardar-menn voru sterkari í seinni hálfleiknum og unnu góðan sigur. Melsungen hafði unnið þrjá fyrstu leiki sína í riðlinum en þetta var bara annar sigur Vardar-liðsins.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti Hrafnhildur til starfa hjá Sundsambandi Íslands Sport „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Fótbolti Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira