Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Kjartan Kjartansson skrifar 18. febrúar 2026 08:30 Flugvél Icelandair býr sig til lendingar á Keflavíkurflugvelli. Félagið fékk fríar losunarheimildir sem eru rúmlega 1,2 milljarða króna virði í fyrra. Vísir/Anton Brink Icelandair og ítalskt leiguflugfélag fengu úthlutað losunarheimildum frá íslenska ríkinu á grundvelli sérlausnar ESB fyrir Ísland í síðasta mánuði. Ríkissjóður verður af rúmlega 400 milljónum króna í tekjur sem hann hefði getað haft af því að selja heimildirnar.
Íslensk stjórnvöld úthlutuðu losunarheimildum til flugfélaga á grundvelli sérlausnar sem þau fengu frá hertum reglum í evrópska viðskiptakerfinu með losunarheimildir (ETS) í fyrsta skipti í janúar. Úthlutunin er til þess að félögin geti gert upp losun sína í fyrra. Icelandair fékk 40.652 losunarheimildir frá íslenska ríkinu og Neos, ítalskt leiguflugfélag, 1.365 heimildir. Núverandi gengi slíkra heimilda er í kringum sjötíu evrur. Verðmæti heimildanna sem ríkið úthlutaði félögunum tveimur nemur því í kringum 430 milljónum króna. Losunarheimildirnar frá ríkinu bætast við þær tæplega 84.000 heimildir sem Icelandair fékk úr ETS-kerfinu í fyrra. Samtals fékk íslenska flugfélagið þannig heimild til þess að losa um 125.000 tonn af koltvísýringsígildum ókeypis í fyrra sem saman eru um 1,27 milljarða króna virði. Heimild til þess að greiða niður losun flugfélaganna Árið 2025 var það síðasta sem flugfélögin fengu endurgjaldslausar losunarheimildir út úr ETS-kerfinu. Kerfið, sem var tekið í notkun árið 2005, var hannað sem efnahagslegur hvati fyrir stórlosendur til að draga úr losun sinni. Þeir fengu hluta losunarheimilda sinna endurgjaldslaust en þurftu að greiða fyrir losun umfram þær. Þessum endurgjaldslausu heimildum var fækkað í áföngum en þær voru afnumdar í ár. Íslensk stjórnvöld gerðu hins vegar samkomulag við Evrópusambandið um sérlausn fyrir flugfélög á Íslandi með þeim rökum að kerfið legðist þyngra á Ísland en önnur ríki þar sem flugleiðir til og frá landinu væru að jafnaði lengri en í öðrum Evrópuríkjum. Sérlausnin var fólgin í því að íslensk stjórnvöld fengu heimild til þess að úthluta hluta af þeim losunarheimildum sem þau fá til flugfélaganna. Íslenska ríkið hefði annars getað selt þær heimildir á uppboði en ríkissjóður hefur fengið inn milljarða króna á undanförnum árum með þeim hætti. Lausnin var því í reynd heimild til þess að íslenska ríkið niðurgreiddi losun flugfélaga á Íslandi. Ríkisstjórnin á nú í samningaviðræðum um mögulega framlengingu á sérlausninni en hún gildir aðeins fyrir losun síðasta árs og þessa árs. Dýrara fyrir ríkið í ár Kostnaður ríkisins af úthlutun á grundvelli sérlausnarinnar verður að líkindum enn hærri fyrir þetta ár. Nú fá flugfélögin engar endurgjaldslausar heimildir út úr ETS-kerfinu og tekur ríkissjóður af slakann í staðinn. Stjórnvöld geta í mesta lagi ráðstafað 155.576 losunarheimildum til flugfélaga vegna losunar á þessu ári. Markaðsvirði þeirra um þessar mundir nálgast 1,6 milljarða króna. Af þeim gæti Icelandair fengið í kringum 120 þúsund tonn að verðmæti um 1,2 milljarða. Hnökrar á framkvæmd séríslenskrar lausnar Ísland er eina landið sem fékk sérlausn af þessu tagi. Eitt skilyrða hennar var að flugfélögin sem fengju úthlutað skiluðu inni vottaðri áætlun um hvernig þau ætluðu að ná kolefnishlutleysi í framtíðinni. Vegna þess að hvergi eru gerðar kröfur um slíkar áætlanir annars staðar reyndist þó snúið að finna einhvern sem gæti vottað áætlanirnar. Einar Halldórsson, teymisstjóri loftgæða og losunarheimilda hjá Umhverfis- og orkustofnun, segir að lendingin hafi verið sú að viðurkenndir vottunaraðila kolefnishlutleysisáætlana í öðrum iðnaði geti vottað áætlanir flugfélaganna. Áður hafði skilyrðið verið túlkað þannig að aðili með viðeigandi faggildingu vottaði áætlanirnar en slík faggilding var ekki til fyrir flugrekendur. Sérlausnin gildir ekki fyrir íslensk flugfélög heldur þá flugrekendur sem fljúga til og frá landinu. Á þeim forsendum gat Neos sótt um úthlutun losunarheimilda frá íslenska ríkinu. Íslensk yfirvöld gátu aftur á móti ekki úthlutað heimildunum beint til ítalska félagsins þar sem þau hafa ekki umsjón með því. Því þarf Ísland að millifæra heimildirnar til ítalskra yfirvalda sem svo úthluta Neos þeim. Umhverfis- og orkustofnun beið enn staðsfestingar á því að Neos hefði fengið heimildunum úthlutað í byrjun þessarar viku.
Evrópusambandið Fréttir af flugi Icelandair Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) EES-samningurinn Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Sjá meira