„Það er ekki nokkur leið að reka Færeyinginn úr Mosfellsbæ“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. febrúar 2026 16:26 Jógvan Hansen og Hrafnhildur Jóhannesdóttir hafa sett íbúð sína í Mosfellsbæ á sölu. Hjónin Jógvan Hansen og Hrafnhildur Jóhannesdóttir hafa sett íbúð sína að Súluhöfða 25 í Mosfellsbæ á sölu. Íbúðin er 139 fermetrar, skartar einu frægasta karlagreni landsins og er ásett verð 99,9 milljónir króna. Ekki sé nokkur leið til að reka Færeyinginn úr Mosfellsbæ og ætla þau hjónin sér að byggja nýtt hús í bænum.
Íbúðin er á neðri hæð í tvíbýlishúsi sem var byggt árið 2000 og fylgja henni tvö einkabílastæði vinstra megin við húsið. Gengið er niður hellulagðar tröppur að íbúðinni inn um sérinngang. Íbúðin samanstendur af forstofu, holi, alrými, eldhúsi, samliggjandi stofu og borðstofu, baðherbergi, þremur svefnherbergjum, þvottaherbergi og geymslu. Gengið er niður hellulagðar tröppur að íbúðinni. „Ég ætla að selja þetta sem allra fyrst,“ sagði Jógvan glettinn þegar blaðamaður hafði samband til að forvitnast um íbúðina. Hyggjast þau hjónin reisa sér eigið hús í bænum. „Planið er að byggja okkur hús milli tengdamóður minnar og mágkonu. Fjölskyldan er þétt og okkur fannst alveg kjörið tækifæri núna að gera eitthvað svoleiðis,“ segir tónlistarmaðurinn færeyski. „Við erum ekki byrjuð en við ætlum helst að byrja í sumar. Þetta verður ævintýri, að sjá hvort við náum að koma upp einum steypuklumpu. Er þetta ekki íslenska fjárfestingin ef maður kann ekki að kaupa hlutabréf, að búa til steypu?“ „Ég er búin að finna íbúð fyrir ykkur“ „Við keyptum íbúðina 2010, ég var á þessum tíma í skóla og konan mín að kenna, nýútskrifaður stærðfræðikennari. Við vorum úti í Færeyjum og ég fæ símtal frá tengdamóður minni,“ segir Jógvan. „Ég er búin að finna íbúð fyrir ykkur, þið verðið að kaupa hana!“ hafi tengdamóðirin sagt og svaraði Jógvan þá: „Nei, nei, ég þarf að sjá hlutinn, ég er ekki Íslendingur og þarf að sjá það áður en ég kaupi nokkurn skapaðan hlut.“ Jógvan og Hrafnhildur giftu sig árið 2014. „En elsku tengdamóðirin var alveg með þetta. Þá bjuggum við í Reykjanesbæ en fyrstu tíu árin mín á Íslandi flutti ég níu sinnum. Þannig ég var mjög glaður þegar ég gat labbað þarna inn og sagt: „Það getur enginn hent mér út úr þessu, þetta er my shit.“ Og við fengum þetta á mjög skikkanlegu verði og okkur er búið að líða alveg ótrúlega vel,“ segir hann. „En svo gerist eitthvað í manni, þegar maður er fiðrildi þarf maður að fljúga milli trjánna.“ Eins gott að húsið geti ekki talað Íbúðinni fylgir geymsluskúr sem er í garðinum en blaðamanni barst til eyrna að þar væri um einkar öflugt karlagreni (e. man cave) að ræða. „Þetta er frægasta „mancave“ á Íslandi og allir frægustu karlmenn á Íslandi farið inn í þennan kofa og fengið sér skerpukjöt, grindhval, spik, snaps og bjór,“ segir Jógvan. „Þetta er kallað Karlakot, sem er smá masókístískt nafn, en ég veit ekki hvernig það byrjaði. Við höfum í gamni sagt að það fari bara karlmenn þarna inn en það er ekki raunin. Börnin mín þekkja þetta bara sem Karlakot frekar en útihúsið.“ Fjölmargir góðir menn hafa kíkt í Karlakotið. „Ég á margar góðar sögur úr þessu húsi, Jesús minn. Það er eins gott að það getur ekki talað og ég lýg því ekki þegar ég segi að það hafa margir stórkostlegir menn komið inn í þetta blessaða kot,“ segir Jógvan. Utan á Karlakotinu er búið að festa bílnúmeraplötu með einkanúmerinu Jógvan. Við húsið er góður grasblettur og alvöru karlagreni. „Ömmubróðir minn, sem lést fyrir mörgum árum síðan, var bílaeftirlitsmaður í Klaksvík og þegar það fór af stað að maður gæti sett nafnið sitt eða skrifað eitthvað á númeraplötuna var hann svo sniðugur að hann tók Jógvan strax - það er náttúrulega endalaust af Jógvönum í Færeyjum. Þegar mamma mín og aðrir fóru að taka til í húsinu hans kom þessi númeraplata frá Klaksvík í ljós,“ segir Jógvan. „Ég veit ekki hvort ég selji hana með húsinu. Ef einhver ætlar að kaupa hana þá þarf hann að borga þrjár milljónir aukalega, það er bara svoleiðis,“ segir Jógvan og hlær. „En ég tek þetta örugglega með mér, það vill enginn hafa Jógvan hangandi utan á sér... nema konan mín.“ Eldhúsið og borðstofan eru björt. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni. Eins og áður sagði ætla þau hjónin að halda sig í Mosfellsbænum enda segir Jógvan ómögulegt að ná honum þaðan úr þessu. „Það nær mér enginn úr Mosó,“ segir Jógvan og bætir við: „Okkur líður einstaklega vel hér, konan mín er úr bænum og við erum með hesthús. Það er ekki nokkur leið að reka Færeyinginn úr Mosfellsbæ, hér er það gott að vera.“ Í baðherberginu er bæði sturta og baðkar.
Fasteignamarkaður Mosfellsbær Tímamót Færeyjar Hús og heimili Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Fleiri fréttir Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Sjá meira