„Þetta ætti að smella bara eins og flís við rass“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. febrúar 2026 14:48 Jóhann Þór bindur miklar vonir við komu Jeremy Pargo. vísir Jóhann Þór Ólafsson stefnir á að stýra toppliði Grindavíkur til sigurs í heimsókninni til Keflavíkur í 17. umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Þjálfarinn segir nýja/gamla leikstjórnandann Jeremy Pargo eiga eftir að smella við liðið eins og flís við rass. „
Hann [Jeremy Pargo] er með mikla reynslu og ákveðin gæði sem við trúum að muni styrkja liðið. Við vitum hvað við erum að fá og það er aðallega það sem við vorum að leita í“ sagði Jóhann í samtali við Vísi. Bandaríski leikstjórnandinn spilar sinn fyrsta leik á þessu tímabili fyrir Grindavík í kvöld. Hann leysir Khalil Shabazz af hólmi en Pargo kláraði einnig tímabilið með Grindavík í fyrra og ætti því að smella strax inn í liðið. „Já, alveg klárlega. Hann kom hérna í síðustu viku og hefur með okkur í einhverja tíu daga. Hann veit nákvæmlega að hverju hann gengur og við líka, þannig að þetta ætti að smella bara eins og flís við rass.“ Topplið Grindavíkur hefur hins vegar orðið fyrir skakkaföllum. Arnór Tristan Helgason meiddist á hné í leik gegn Val á dögunum og verður frá keppni næstu vikurnar. „Klárlega mikill missir. Við erum ekki með breiðan hóp og Arnór hefur líka bara staðið sig mjög vel í vetur, það er mikill missir að hann detti út en vonandi verður hann klár aftur sem fyrst“ sagði Jóhann en gat ekki sagt til um hvenær Arnór myndi snúa aftur. Vonandi yrði það fyrir úrslitakeppnina. Jóhann Þór tók sér stutt leyfi frá störfum í janúar eftir að eiginkona hans, Sif Rós, greindist með MND-taugasjúkdóm. Aðstoðarþjálfarinn Helgi Magnússon stýrði liðinu í næstu leikjum en Jóhann sneri aftur á gólfið í síðustu umferð. „Þetta er ákveðin biðstaða sem við hjónin erum í en ég tók ákvörðun um að snúa til baka og dreifa huganum. Þessi síðustu þrjú ár hafa kennt manni ýmislegt og þetta er bara enn eitt verkefnið sem við fáum í fangið á stuttum tíma. En við verðum bara að lifa með því og gera eins vel og hægt er úr þeim aðstæðum“ sagði Jóhann að lokum. Leikur Keflavíkur og Grindavíkur hefst klukkan 19:30 í kvöld og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Keflavík ÍF Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira