Fá veglegan styrk og innleiða Bara tala í alla framhaldsskóla Árni Sæberg skrifar 13. febrúar 2026 12:56 Inga Sæland, menntamálaráðherra, og Jón Gunnar Þórðarson, framkvæmdastjóri Bara tala. Birgir Ísleifur Gunnarsson Máltækni fyrirtækið Bara tala hefur hlotið 25 milljóna króna styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu til umfangsmikils þróunarverkefnis sem miðar að því að efla íslenskunám nemenda með annað móðurmál en íslensku í framhaldsskólum landsins. Þróunarverkefnið verður innleitt í alla framhaldsskóla landsins næsta haust.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Bara tala segir að verkefnið sé unnið í nánu samstarfi við Tækniskólann, Verzlunarskóla Íslands, Verkmenntaskóla Austurlands og Framhaldsskólann á Húsavík og hafi það að markmiði að brúa bilið milli tungumálanáms og fagnáms á framhaldsskólastigi. Í dag séu yfir 160 stafræn námskeið í boði í Bara tala, þar sem lögð sé áhersla á starfstengt íslenskunám og íslensku sem nýtist í daglegu lífi. Verkefnið felist í þróun stafræns náms- og fagorðaforða sem geri nemendum kleift að tileinka sér íslensku í beinu samhengi við nám sitt, hvort sem um sé að ræða bóknám, tæknigreinar eða verklegt iðnnám. Með því að samþætta íslenskuna beint inn í fagnám nemenda, í stafrænu og aðgengilegu formi, er brugðist við einni helstu áskorun aðfluttra nemenda í framhaldsskólum, þar sem íslenskunámið hafi oftar verið hliðstætt náminu fremur en samofið því. Níu prósent af erlendum uppruna Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands hafi um níu prósent framhaldsskólanema árið 2024 verið af erlendum uppruna og hlutfallið sé víða enn hærra innan einstakra námsbrauta. Fyrir þennan hóp geti skortur á sérhæfðum námsorðaforða orðið raunveruleg hindrun í námi, jafnvel þegar áhugi, hæfni og vilji til náms eru til staðar. Þörfin á hagnýtum og markvissum námsstuðningi sé því mikil, sérstaklega stuðningi sem geri nemendum kleyft að skilja námsefni, taka virkan þátt í kennslustundum og byggja upp sjálfstraust í notkun íslensku. „Í nýlegri úttekt OECD á stöðu innflytjenda á Íslandi er íslenskan sögð lykilforsenda inngildingar í samfélaginu, bæði í menntakerfinu og á vinnumarkaði. Þar kemur fram að aðeins um 18% innflytjenda á Íslandi segjast hafa góða kunnáttu í íslensku, sem er lægsta hlutfall meðal OECD-ríkja. Skortur á íslenskukunnáttu er jafnframt ein helsta ástæða þess að fólk nýti ekki menntun sína og færni til fulls. OECD leggur áherslu á að efla þurfi aðgengilegt, sveigjanlegt og hagnýtt íslenskunám sem tengist beint námi, starfi og daglegu lífi, þar sem stafrænar lausnir á borð við Bara tala gegna lykilhlutverki.“ Hluti af heildstæðu átaki Þá segir að úthlutun styrksins falli að þessari stefnumörkun og sé hluti af heildstæðu átaki stjórnvalda til að efla íslensku sem annað tungumál. Mennta- og barnamálaráðherra hafi nýlega úthlutað tæplega 200 milljónum króna til sautján aðila sem vinni að nýjungum í íslenskunámi innflytjenda. Úthlutunin byggi á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, menntastefnu til 2030 og þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024–2026, þar sem lögð sé áhersla á nýjar leiðir til að tryggja jafnt aðgengi að íslenskunámi. Í úthlutunarferlinu hafi verið lögð sérstök áhersla á samstarfsverkefni sem hafi burði til almennrar dreifingar. Með samstarfi framhaldsskólanna fjögurra og Bara tala verði til öflugt samstarfsnet sem styrki íslenskuna þvert á skólastig og námssvið. Verkefnið sé því ekki aðeins þróunarverkefni fyrir afmarkaðan hóp heldur fyrirmynd að lausn sem hægt verði að innleiða víðar innan skólakerfisins.
Framhaldsskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skóla- og menntamál Íslensk tunga Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira