Allt rykbindiefni búið Sunna Sæmundsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 12:01 Styrkur svifryks í andrúmsloftinu var langt umfram heilsuverndarmörk í gær og loftgæði eru farin að versna í dag. vísir/Vilhelm Ekkert rykbindiefni er til á landinu og er því ekki hægt að bregðast við mikilli svifryksmengun í borginni. Þau sem eru mjög viðkvæm ættu að íhuga að halda sig inni, segir heilbrigðisfulltrúi.
Styrkur svifryks í andrúmslofti við umferðargötur á höfuðborgarsvæðinu var langt umfram heilsuverndarmörk í hægviðrinu í gær og búist er við sömu stöðu í dag, segir Svava Svanborg Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. „Við erum að sjá að svifrykið er að hækka miðað við fyrstu tölur í morgun. Og það er viðbúið, þar sem það er hægviðri, að það muni halda áfram að fara hækkandi. Sérstaklega þegar umferðin fer að verða þung í eftirmiðdaginn,” segir Svava. Svava Svanborg Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Hún segir svifryksgildi hafa mælst há fram á gærkvöld „Fíngerðasta rykið fýkur ekkert í burtu og hangir í loftinu og er að angra okkur miklu lengur en við myndum vilja sjá.” Rykbundið var í Reykjavík á aðfaranótt miðvikudags en það dugði ekki til að halda halda mengun innan heilsuverndarmarka. „Við vorum að vonast til að geta endurtekið hana en því miður er ekkert rykbindiefni til í landinu þannig að við þurfum að bíða með að geta endurtekið hana, þar til jafnvel eftir viku.” Svava segist ekki vita hvers vegna efnið hafi ekki verið fáanlegt. Þá sé ekki unnnt að þrífa stofnbrautir með vatni þar sem það myndi orsaka hálku. Fólk er því nokkuð varnarlaust gagnvart menguninni að svo stöddu. Svava segir reiknað smá úrkomu og vindi á morgun og vonar að hluti ryksins fjúki. Ekki sé þó gert ráð fyrir almennilegri úrkomu fyrr en um miðja næstu viku. Hún hvetur fólk til þess að hvíla einkabílinn ef hægt er og bendir viðkvæmum, börnum og öldruðum á að gæta sín. Ekki er hægt að rykbinda þar sem ekkert rykbindiefni er til í landinu.vísir/Egill „Meira að segja við sem erum með heilbrigð lungu og erum ekki í þessum útsettu hópum, að þá er ekki gott að stunda mikla áreynslu í mikilli mengun. Þá drögum við meira loft í lungun og það getur haft áhrif á okkur. Þannig að fólk ætti að reyna að stilla útivistinni þannig að það sé fjarri stórum umferðargötum og þeir sem eru mjög viðkvæmir fyrir ættu bara að íhuga að vera inni,” segir Svava. Hér er hægt að fylgjast með loftgæðum.
Umferð Umhverfismál Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira