Kjósum raunverulega breytingu á forystu Framsóknarflokksins Steinar Óli Sigfússon skrifar 13. febrúar 2026 11:45 Undanfarin ár höfum við í Framsóknarflokknum þurft að horfast í augu við að ákveðin lægð hefur gengið yfir starf okkar. Umræðan hefur víða orðið óskýrari og margir flokksmenn upplifað að stefna okkar og framtíðarsýn hafi hvorki verið nægilega skýr né sannfærandi. Þetta er ekki óyfirstíganlegt ástand, en það kallar á heiðarlega sjálfsskoðun og raunverulegan vilja til breytinga. Ég er skynsemishyggjumaður í eðli mínu og af þeim sökum hef ég fundið mér farveg innan Framsóknarflokksins – flokks sem er byggður á jafnvægi, ábyrgð og raunhæfum lausnum. Nú stöndum við hins vegar á tímamótum þegar við kjósum nýjan formann á flokksþingi um komandi helgi. Á slíkum stundum þarf að staldra við og spyrja hvert við ætlum og hver sé best til þess fallinn að leiða okkur þangað? Ég er flokksmaður sem kallar eftir forystu sem er tilbúin til að leiða flokkinn inn í framtíðina með skýrri stefnu, metnaðarfullum markmiðum og óþreytandi elju sér að vopni. Ákall hefur verið innan flokksins um hressilega innspýtingu; raunverulega nýja forystu sem skerpir á stefnumálum, dragi aftur fram kjarna framsóknarstefnunnar og veki starf flokksins til lífsins á ný. Í Ingibjörgu Isaksen sé ég þann leiðtoga sem flokkurinn þarfnast nú. Hún er hinn klassíski framsóknarmaður af því tagi sem við erum flest. Keppniskona af bestu gerð, með skýra sýn, mikinn metnað og óþreytandi til verka. Hún er talsmaður komandi kynslóða og skilur að Framsóknarflokkurinn á ekki að sætta sig við neitt annað en forystu sem getur gert betur. Betur í stefnumótun, betur í innleiðingu þeirrar stefnu og betur í að leiða flokkinn af festu og sannfæringu inn í framtíðina. Þess vegna styð ég Ingibjörgu heilshugar til formennsku í Framsóknarflokknum. Höfundur er háskólanemi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Undanfarin ár höfum við í Framsóknarflokknum þurft að horfast í augu við að ákveðin lægð hefur gengið yfir starf okkar. Umræðan hefur víða orðið óskýrari og margir flokksmenn upplifað að stefna okkar og framtíðarsýn hafi hvorki verið nægilega skýr né sannfærandi. Þetta er ekki óyfirstíganlegt ástand, en það kallar á heiðarlega sjálfsskoðun og raunverulegan vilja til breytinga. Ég er skynsemishyggjumaður í eðli mínu og af þeim sökum hef ég fundið mér farveg innan Framsóknarflokksins – flokks sem er byggður á jafnvægi, ábyrgð og raunhæfum lausnum. Nú stöndum við hins vegar á tímamótum þegar við kjósum nýjan formann á flokksþingi um komandi helgi. Á slíkum stundum þarf að staldra við og spyrja hvert við ætlum og hver sé best til þess fallinn að leiða okkur þangað? Ég er flokksmaður sem kallar eftir forystu sem er tilbúin til að leiða flokkinn inn í framtíðina með skýrri stefnu, metnaðarfullum markmiðum og óþreytandi elju sér að vopni. Ákall hefur verið innan flokksins um hressilega innspýtingu; raunverulega nýja forystu sem skerpir á stefnumálum, dragi aftur fram kjarna framsóknarstefnunnar og veki starf flokksins til lífsins á ný. Í Ingibjörgu Isaksen sé ég þann leiðtoga sem flokkurinn þarfnast nú. Hún er hinn klassíski framsóknarmaður af því tagi sem við erum flest. Keppniskona af bestu gerð, með skýra sýn, mikinn metnað og óþreytandi til verka. Hún er talsmaður komandi kynslóða og skilur að Framsóknarflokkurinn á ekki að sætta sig við neitt annað en forystu sem getur gert betur. Betur í stefnumótun, betur í innleiðingu þeirrar stefnu og betur í að leiða flokkinn af festu og sannfæringu inn í framtíðina. Þess vegna styð ég Ingibjörgu heilshugar til formennsku í Framsóknarflokknum. Höfundur er háskólanemi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar