Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Freyja Þórisdóttir skrifar 13. febrúar 2026 10:38 MAST svipti nokkra kattaeigendur vörslu á dýrum sínum í vetur. Myndin er úr safni og tengist málinu ekki. Vísir/Einar Matvælastofnun fjarlægði ketti af heimili sem eigandi skildi eftir eina heima á meðan hann fór í margra vikna ferðalag erlendis. Nokkrir kattanna fundust dauðir. Stofnunin sektaði fjölda dýraeigenda fyrir vanbúnað og fjarlægði hund af heimili vegna vanrækslu.
Í kjölfar ábendingar fóru starfsmenn Matvælastofnunar (MAST) á staðinn þar sem nokkrir kettir fundust dauðir en aðrir voru fjarlægðir. Þetta kemur fram í nýbirtum stjórnvaldsákvörðunum Mast í dýravelferðarmálum fyrir nóvember, desember og janúar. Fuglasláturhús var sektað um rúmlega 140 þúsund krónur vegna brota á velferð fugla við aflífun. Samkvæmt MAST var ekki gripið til viðeigandi ráðstafana þegar óvænt varð rafmagnslaust í sláturhúsinu. Þetta leiddi til ófullnægjandi umhirðu fugla á sláturlínu. Hundur var fjarlægður af heimili í kjölfar lögregluheimsóknar sem leiddi í ljós heilsuspillandi íbúð. Einnig greinir MAST frá því að á heimilinu hafi aðbúnaður ekki verið nægur og ummönnun á hundinum ekki sem skyldi. Tæplega 300 þúsund króna sekt var lögð á nautgripabónda en upp komst um að hann hefði bundið naut á bása. Samkvæmt reglugerð er slíkt bannað en nautgripi má einungis binda sé þess þörf á meðan þeir eru meðhöndlaðir. Þá fjarlægði MAST öll kvendýr og ungviði úr hjörð annars nautgripabónda. Það var í kjölfar árangurslausra dagsekta til að knýja hann til úrbóta á velferð dýranna.
Dýr Matvælastofnun Kettir Hundar Gæludýr Stjórnsýsla Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Fleiri fréttir Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Kallar eftir aðhaldi bæði frá hinu opinbera og vinnumarkaðnum Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Sjá meira